Mér finnst þér takast ágætlega upp í fyrsta erindinu. En svo eftir það fer ljóðið niður á við. Persónulega hefði mér fundist fara betur á því ef að þú hefðir haldið þig við myndrænar og náttúrutengdar lýsingar á líðaninni frekar en að segja það beint út. Það að segja ,,mér líður illa“ skilur ekki mikið eftir sig hjá lesandanum, aftur á móti getur sterk mynd sótt á lesanda marga daga eftir lestur. Myndin af því þegar ,,þú” kemur hljótt eins og lauf falla af trjám er mjög góð, virkilega góð og...