Nístíngskaldur
norðanvindur
niðdimm nótt

og fræin sem féllu
ár eftir ár, haust eftir haust
í skjóli þínu
döfnuðu

og blöðin sem féllu
ár eftir ár, haust eftir haust
eftir sólríka daga
fölnuðu

en þú
sem eftir stendur
hendur þínar þreyttar
líkami þinn bugaður

nístingskaldur
norðanvindur
og niðdimm nótt