Í dag er ég glaður
svo glaður og gleyminn
en ég veit að þú kemur
þú kemur í kvöld

Þú tekur allt frá mér
mína æsku og gleði
og lætur mig finna
hve óhreinn ég er

Þú stendur upp sveittur
og sængin hún fellur
í kuðungi ligg ég
með ógrátin tár.

Ó elsku pabbi
því ertu svo vondur
Ég vil bara sofa
sof´eina nótt

Á morgun, þá mun ég
í ferðina fara
og enda mitt líf
og svo ekki meir

En í dag er ég glaður
svo glaður og gleiminn
ég vil bara sofa
sof´eina nótt.


kveðja;
Krystall