KR-ingar leita nú að nýju Rauðu ljóni. Þ.e.a.s. þeir leita að nýjum aðila til að vera inin í ljónshamnum. Laugardaginn 12. maí verður áheyrnarpróf, svokallað, en þá fá þeir sem áhuga hafa á að leika ljónið í sumar tækifæri til að sanna hæfileika sína sem ljón í búningnum. Hægt verður að sækja um á kr.is.