Danski landsliðsmarkvörðurinn Peter Schmeichel hefur skrifað undir 3ja ára samning við KR, að sögn KR-boltans í dag. Þar stendur að þrátt fyrir frammistöðu Kristjáns Finnbogasonar gegn Grindvíkingum séu forsvarrsmenn KR í stöðugri leit að eftirmanni hans. Þeir hafi svo gripið tækifærið meðan Danska landsliðið keppti við Ísland og samið við stórstjörnuna, en eins og kunnugt er lék hann lengi vel með Machester United. En hvort þetta er eintómt slúður í KR-boltanum eða sannleikur skal ósagt látið.