Loksins skorar Andri í deildinni Andri Sigþórsson skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Salzburg um helgina þegar að félagið sigraði LASK Linz 3-1. Áður hafði Andri skorað mark fyrir austurríska liðið í bikarkeppninni. Lask var 1-0 yfir í hálfleik, en Andri jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks með glæsilegu marki að sögn austurrísku blaðanna á laugardaginn. Hann fór svo meiddur af velli á 75. mínútu, en meiðslin eru ekki talin það alvarleg að hann þurfa að missa af leikjum vegna þeirra.

Staðan í Austurríki þegar að sjö umferðir eru eftir:

1 Tirol Innsbruck 55
2 Rapid Vienna 48
3 Sturm Graz 47
4 Austria Vienna 45
5 > Salzburg 41
6 Grazer 41
7 SV Ried 40
8 Admira Wacker 29
9 LASK Linz 27
10 SW Bregenz 26