Jæja nú fer boltinn að rúlla. Öll liðin eru í toppástandi og koma vel undan vetri. Ég spái Frömurunum alveg frábæri gengi í sumar þeir eru í þrusu formi og Fjalar Þorgeirsson er hættulega efnilegur markvörður.
Hann spyrnir vel frá marki og kemur boltanum fljótt í leik. Helsti kostur varnar Fram er sá að innan hennar er mikil reynsla sem á eftir að vega þungt og bætir nokkuð upp veikleika hennar, sem einkum er skortur á hraða og vandi við að koma knettinum í leik. Þarna eru hins vegar menn sem geta spyrnt mjög langt og vel.
Mikið þarf að ganga á ef að þeir verða ekki meistarar þetta árið. - Áfram Framarar!!!!