Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Benediktsson, sem leikið hefur með KR undanfarin ár, verður ekki í herbúðum Íslandsmeistaranna á næstu leiktíð. Samningur hans við KR rennur út 31. desember næstkomandi. Forsvarsmenn KR buðu honum tilboð, en Guðmundur hafnaði því og gerði gagntilboð. Gagntilboð Guðmundar töldu KR-ingar óraunhæft og verður Guðmundur ekki í herbúðum KR-inga að ári. Það er því ljóst að báðir sóknarmenn KR, Andri Sigþórsson og Guðmundur Benediktsson verða hvorugur með KR á næstu leiktíð. Og ekki hafa KR-ingar fengið neinar greiðslur fyrir kappana og því er ólíklegt að KR muni tefla fram jafn sterkum sóknarmönnum á komandi ári.