Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari íslands virðist hafa gert fjórar breytingar á byrjunarliði íslands sem mætir möltu. Tveir íslenskir leikmenn eru í banni þeir Heiðar Helguson vegna tveggja gulra spjalda og svo Lárus Orri sigurðson vegna rauðs spjald gegn Búlgörum en liðið er þannig skipað.

Árni Gautur Arason verður í marki.
Arnar Viðarsson og Rúnar Kristinsson verða bakverðir.
Fyrir miðju í vörninni verða þeir Eyjólfur Sverrisson og Hermann Hreiðarsson.
Á köntunum verða Tryggvi Guðmundsson og Helgi Sigurðsson.
Á miðjunni þeir Arnar Grétarsson og Brynjar Björn Gunnarsson
Eiður Smári Guðjohnsen og Andri Sigþórsson verða fremstu menn.

mjög undarlegt lið hjá Atla en aldrei er að vita hvað gerist