Í kvöld hefjast 1. og 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Í 1. deild eru þrír leikir, Þróttur - Víkingur, Þór - Leiftur og Tindastóll - Stjarnan. Allir leikirnir hefjast klukkan 20. Önnur deild hefst í kvöld á tveimur leikjum, á Selfossi taka heimamenn á móti Skallagrími og á Garðsvelli eigast við heimamenn í Víði og Haukar.
Þjálfarar liða í fyrstu deild spáðu fyrir um sumarið, líkt og ævinlega, og spá þeir Stjörnunni og KA upp í úrvalsdeild. Tindastóli og KS spá þeir falli í aðra deild. Spáin er þessi:

1. Stjarnarn - 73 stig
2. KA - 72 stig
—————
3. Þór A. - 68 stig
4. Víkingur - 63 stig
5. Leiftur - 45 stig
6. ÍR - 40 stig
7. Þróttur R. - 38 stig
8. Dalvík - 19 stig
—————
9. Tindastóll - 18 stig
10. KS - 14 stig


Spá annarrar deildar er þessi:

1. Haukar - 74 stig
2. Skallagrímur - 66 stig
—————
3. Afturelding - 65 stig
4. Sindri - 60 stig
5. Selfoss - 54 stig
6-7. Leiknir R. - 32 stig
6-7. Víðir - 32 stig
8. Nökkvi - 27 stig
—————
9. Léttir - 22 stig
10. KÍB - 18 stig