Kvennalið KR í Evrópukeppnina Evrópukeppni meistaraliða kvenna, sem nú verður haldin í fyrsta sinn, hefst í haust og verða KR-ingar fulltrúar Íslands í keppninni, þrátt fyrir sigur Breiðabliks í Landssímadeild kvenna í fyrra. Breiðablik ákvað að senda ekki lið til keppninnar, þar sem margir af lykilmönnum félagsins hafa yfirgefið liðið. Undankeppni mótsins fer fram um mánaðarmótin september - október.