Búið er að fresta leik Fram og ÍBV sem fram átti að fara í kvöld. Leikurinn hefur verið settur á annað kvöld. Ástæðan fyrir frestuninni er sú að ekki var flugfært frá Eyjum.

Verður: Þriðjudaginn 29. maí kl. 20:00 á Valbjarnarvelli

Bæði lið þurfa nauðsynlega að sigra á morgun. Fram er eina liðið í deildinni sem hefur enn ekki unnið sér inn stig og þurfa þeir að kippa því í lag. Vestmannaeyjingar hafa ekki náð að skora í tveim fyrstu umferðunum en eru komnir með nýja sóknarmenn, þá Tómas Inga og Dejan Djokic. Ég hvet fólk til að mæta á Valbjarnarvöllinn annað kvöld.