Stórleikur annarrar umferðar Stórleikur annarrar umferðar verður að teljast viðureign KR og ÍA, sem fram fer í Vesturbænum í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20. Skagamenn hafa ekki sótt gull í greipar KR-inga síðastliðin misseri, en Skaginn hefur tapað fyrir KR í Vesturbænum síðan 1994, þegar liðin gerðu markalaust jafntefli.. Síðast skoruðu Skagamenn í Vesturbænum árið 1995, en þá fór leikurinn 3:2 og var það eina tap Skgans það árið.
En alls hafa liðin mætst 92 sinnum í efstu deild. Úr þeim leikjum hafa Skagamenn sótt fleiri sigra, eða 38, á móti 28 sigrum KR. 25 sinnum hafa liðin gert jafntefli. Markatalan úr þeim leikjum er 150:130, ÍA í hag.