Ef mig misminnir ekki þá var síðasta boð Hitlers til Breta um sérfrið sett á borðið fljótlega eftir hernám Frakklands, þegar breski herinn var enn í sárum eftir undanhaldið frá Dunkirque, þ.e. um sumarið 1940. Hitler hafði aldrei haft í hyggju stríð við Breta, sem hann taldi aríska þjóð, heldur ætlaðist til að Bretar og Þjóðverjar réðu yfir heiminum í sameiningu. Hugmynd Hitlers gerði ráð fyrir að Bretar héldu sínu gamla sjóveldi á úthöfunum en létu Þjóðverjum eftir völd á meginlandi Evrópu...