HaLLÓ!!! Er einhver þarna úti sem er ekki með eintóman hroka og viðbjóð???
Ég spyr því mér leiðist að lesa greinar eftir gaura með of mikla hormónastarfssemi fyrir þeirra eigin heilsu, sem einkennast af eintomum hroka og yfirlæti, þröngsýni og þvermóðsku og “drull” yfir aðrar bardagalistir en þeirra eigin, perónulegt “drull” yfir menn sem þeir þekkja ekki(t.d. það virðast margir hafa skoðanir á Jimmy og hans starfssemi), álitsyfirlýsingar sem sýnir hversu óþroskaðir sumir eru o.s.fr.?
Ég tek sérstaklega eftir þessu því ég var svona sjálfur einusinni þangað til ég áttaði mig á því hvað ég geri mig að miklu fifli með því að haga mér svona og ákvað þá að þroskast aðeins og halda opnum huga og KYNNA mér hlutina áður en ég dæmi þá!
Þeir sem eru sama sinnis og ég láti í sér heyra.
Einnig þeir sem eru fullir hroka láti í sér heyra, við viljum örugglega sjá ykkar viðbrögð við þessu.