Ég sé þetta fyrir mér þannig að það sé upplagt að hafa einhverja skipulagða keppni með deilda- eða riðlafyrirkomulagi. Það gefur tækifæri á tvennu, annars vegar að sýna fram á að litbolti er skipulögð íþrótt en ekki bara asnalegur byssuleikur, og hins vegar tækifæri fyrir fólk að koma af stað reglulegu spili. Ef að við erum með einhvers konar tournament í gangi hérna heima gefur það líka liðum utan reykjavíkur meira færi á sambandi við reykjavíkurliðin, nýtingu á völlunum o.s.frv....