“Okkur er talin trú um að við getum öðlast þetta í gegnum menntun, góða vinnu, konu, þrjú lítil börn, hund, lítinn kettling, sem hleypur í kringum vatnið.” Okkur er meira að segja talið trú um að við getum ekki öðlast hamingju í gegnum þessa hluti, en samt heldur fólk áfram að eltast við þá. Sú klisja t.d. að “peningar veiti manni ekki hamingju” er á allra vörum, m.a.s. seðlabankastjóra, en samt lifa flestir eftir þeirri lífsreglu að peningar veiti í rauninni hamingju.