Þetta verður ekki löng og vel skrifuð grein heldur stutt grein skrifuð í geðshræringu vegna vonbrigða sem Wachowski bræður hafa valdið mér með heimskulegustu mynd allra tíma: Matrix Revolutions.
Ég geng út frá því í skrifum mínum að lesandi hafi séð umtalaða mynd…

Endir myndarinnar er sem hér segir:

Neo kemur sér inn fyrir borgarmúra vélanna (hann missir reyndar ástina í lífi sínu í leiðinni) og gerir þeim svo hljóðandi samning: “Ég skal eyða forritinu Smith fyrir ykkur, sem virðist vaxa linnulaust án þess að þið ráðið við það, og í staðinn hættið þið við gjöreyðingu Zion-borgar” (sem er eini staður jarðkringlunnar sem menn eru enn við stjórnvölin).
Förum aðeins yfir það sem þessi samningur hefur í för með sér: Mannkyn mun halda áfram að hýrast í neðanjarðarhellum eins og moldvörpur og munu aldrei sjá dagsljós aftur og Matrix-ið mun halda áfram að vera til. Myndirnar hafa gengið út á frelsun mannkyns (eða svo hélt ég) en í þessari mynd eru allar vonir um eitthvað svoleiðis brotnar á bak aftur. Maður hlýtur að spyrja sig: Hver var tilgangurinn með Matrix myndunum?
Annað sem ég hef að setja út á er endir myndar þrjú: Hann er gersamlega óskiljanlegur. Ef einhver segist skilja hann þá er sá hinn sami að ljúga. Ég er handviss um að bræðurnir hafa ekki komsit að niðurstöðu um hvernig best væri að ljúka öllu saman og soðið saman einhverja helvítis vitleysu sem er álíka rökrétt og meðalmynd eftir David Lynch til að rugla mann og plata fólk til að halda að þeir hafi meint eitthvað með þessu.

Það versta við allt saman er að ef Wachowski bræður hefðu haldið sig við mynd eitt og ekki gert hinar tvær myndirnar hefðu þeir verið álitnir snillingar heimsins, í staðinn eru þeir hataðir fyrir að eyða tíma áhorfenda með vitleysu…

P.S.
Ég geri mér grein fyrir því að myndirnar eru ekki alslæmar og gæfi ég eitt og tvö heilar tvær af fjórum stjörnum. Eitt fengi þrjár og hálfa…


með fyrirfram þökk og von um skilning
Darkside