Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Þórhallur miðill og Gunnar í Krossinum

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
“En ég vil minna á að himnaríki, sem talað er um í Biblíunni, er jörðin. Paradís, sem við fáum að lifa í ef við ákveðum að lifa í sátt við Guð, er jörðin, allir í sátt og samlyndi, dýr og menn, blóm og býflugur.” Þetta er væntanlega þín persónulega skoðun, nema þú sért gyðingur(?). Jesús sagði hins vegar (Jóh. 18:36): “Mitt ríki er ekki af þessum heimi. Væri mitt ríki af þessum heimi, hefðu þjónar mínir barist, svo ég yrði ekki framseldur Gyðingum. En nú er ríki mitt ekki þaðan.” og (Jóh....

Re: Þórhallur miðill og Gunnar í Krossinum

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þetta er ekki það sama og Míþratrú. Það er talið sannað mál að Dauðahafshandritin fjalli um gyðinga, Essena, sem voru sagðir komnir af ættlegg Zadoks og voru því prestastétt. Gyðingar fyrir Krist skiptust í þessa þrjá hópa; Essena, Saddúkea og Farísea, en aðeins farísear lifa enn í dag sem rabbíagyðingdómur. Auðvitað voru hellenísk áhrif á sveimi, Míþratrú, Orfismi, Zaraþústratrú o.fl. sem voru allt dúalismatrúarbrögð, og óljóst hvað hafði áhrif á hvað. Þessi tvíhyggja er samt greinilega...

Re: Þórhallur miðill og Gunnar í Krossinum

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það sem er aðallega merkilegt við Dauðahafshandritin, er að þau segja frá sérkennilegum söfnuði karlmanna sem höfðust við í hellum í Qumran. Þetta voru e.k. munkar sem aðhylltust öfgafullan dúalisma um andann og efnið og vildu skera sig frá öðrum gyðingum, kölluðu þá Sons of Darkness en sjálfa sig Sons of Light. Þeir voru með ljós og hreinleika á heilanum og voru sífellt að þvo á sér tærnar eins og vinur okkar guðsson, lifðu meinlætalífi og stunduðu ekki kynlíf nema til þess að geta börn....

Re: ..veit að þetta er ekki alveg fyrir þetta áhugamál

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
“…en hann gæti ekki verið allt því hann er ekki ég” Af hverju ekki? Hvaða steingeldu hugmynd um Guð gengur ungdómurinn nú til dags eiginlega með í kollinum? Rosalega hljóta allir kristnifræðikennarar landsins að vera jarðbundnir og leiðinlegir. Kristni kennir að það sé guðlegur neisti í öllum mönnum, sem er andinn. Þetta segir líka gyðingdómur, hindúismi og flest trúarbrögð í heiminum. Af hverju þarftu svo endilega að vera kristin? Skv. hindúisma og mörgum gyðingum er Guð alls staðar og í...

Re: Fluga að drekkja sjer í appelsíni

í Tilveran fyrir 22 árum, 7 mánuðum
já, bjargaðu henni. Flugur hafa sál ef þú hefur sál. Þetta gæti verið einhver ættingi þinn endurfæddur.

Re: Þórhallur miðill og Gunnar í Krossinum

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
“En falsspámenn komu einnig upp meðal lýðsins. Eins munu falskennendur líka verða á meðal yðar, er smeygja munu inn háskalegum villukenningum og jafnvel afneita herra sínum, sem keypti þá, og leiða yfir sig sjálfa bráða glötun.” Þetta fjallar um falsspámenn á síðustu dögum sem breiða út villukenningar, miðað við hinn rétt skilning (hver sem hann er), og þykjast tala í nafni Jesú eða vera hann endurfæddur en eru það ekki. Þetta gæti eiginlega alveg eins átt við um Gunnar en Þórhall, eða hvern...

Re: Þórhallur miðill og Gunnar í Krossinum

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Já ég var eiginlega að biðja um að þú fyndir þetta fyrir mig :) Ég kom með nákvæma tilvitnun úr Gamla testamentinu þar sem sömu orð eru notuð og Gunnar notaði. Þú sagðir að HANN hefði einungis stuðst við Nýja testamentið. Nú ætlast ég til þess að fá nákvæma tilvitnun sem styður það. Ég hef ekki lesið Pál postula og hef ekki tíma til þess strax, en ætla mér þó að lesa allt Nýja testamentið fyrr eða síðar.

Re: Þórhallur miðill og Gunnar í Krossinum

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Moon, Ég gerði það sama og þú, reyndi að finna þessa bannfæringu á miðlum sem Gunnar var að vitna í. Sú tilvitnun sem ég fann hljóðar svona: “Eigi skal nokkur finnast hjá þér, sá er láti son sinn eða dóttur ganga gegnum eldinn, eða sá er fari með galdur eða spár eða fjölkynngi, eða töframaður eða gjörningamaður eða særingamaður eða spásagnamaður eða sá er leiti frétta af framliðnum. Því að hver sá, er slíkt gjörir, er Drottni andstyggilegur, og fyrir slíkar svívirðingar rekur Drottinn Guð...

Re: Þórhallur miðill og Gunnar í Krossinum

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Manstu hvaðan sú röksemd kom? Mig minnir reyndar að hann hafi verið að vitna í einhver bréf Páls en mundi ekki hvaða. Hver ákvað hvaða lögmál ættu að vera úreld? Af hverju setti alfullkominn guð lögmál sem voru svo ekki alfullkomin þúsund árum síðar? Ég veit að vinir okkar á Omega eru ekki sammála því að hafna Gamla testamentinu, og ég hélt satt að segja að Gunnar væri sama sinnis, en ég gæti haft rangt fyrir mér. Mér finnst líka afar hæpið að vitna í Pál postula sem eitthvað kennivald enda...

Re: Þórhallur miðill og Gunnar í Krossinum

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Eyjo, Skemmtileg síðan sem þú bentir á. Gaman að fleiri eru að uppgötva gnostísisma. Kíktu endilega á www.gnosis.org , þar eru allar upphaflega bækurnar, Nag Hammadi og Dauðahafshandritin. Svo er líka Tómasarguðspjall til á íslensku, en það er gnostískt rit.

Re: Þórhallur miðill og Gunnar í Krossinum

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Mér fannst nú Þórhallur miðill koma miklu betur út úr þessu. Hann hélt a.m.k. andlitinu og hafði kærleika og umburðarlyndi Krists að leiðarljósi, öfugt við Gunnar sem var ekkert nema ofstopinn. Eins og ég benti á á blogginu mínu (www.kallisti.tk) um daginn, vísaði Gunnar bara í Biblíuna sér til málsvarnar og þá helst Gamla testamentið. Ef hann ætlar að fara strangt eftir lögmálinu þá er það OK í mínum augum, en þá verður hann líka að fara eftir ÖLLUM lögmálum Mósebókanna en ekki bara velja...

Re: RLS varar við pósti vegna eBay uppboðsíðunar.

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þetta eru góð og þörf ráð. Ég lenti einmitt í því þegar ég pantaði fyrst á eBay að ég fékk ekki að vita póstkostnaðinn fyrr en ég var búinn að vinna uppboðið á vörunni, og þá var hann hærri en sjálf varan og þrefalt dýrari en t.d. hjá Amazon þó að ég hefði valið ódýrustu og hægustu sendingarleið án allra trygginga.

Re: Malcom in the middle

í Sjónvarpsefni fyrir 22 árum, 7 mánuðum
áhorfendahóp

Re: Malcom in the middle

í Sjónvarpsefni fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég hef nú aldrei skilið hvað fær stálpaða unglinga og fullorðið fólk til þess að horfa á þennan ofleikna og tilgerðarlega þátt þar sem allir leikarar eru óþolandi manngerðir. Er ekki bara verið að gera þetta aðgengilegra fyrir hinn rétta áhorfendahóð, 2-7 ára?

Re: 10 ástæður fyrir að ég elska techno

í Danstónlist fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Fín grein. Þarna eru a.m.k. fjögur lög sem ég á ekki og hef ekki heyrt. Verð að bæta úr því. Ég held að það sé orðið tímabært að umbylta Huga þannig að stjórnendur hvers áhugamáls geti strokað út skítkast og rugl. Menn eru bara að opinbera sína vanþekkingu, fordóma og almennan fávitahátt, og það gerir engum gott.

Re: Pælingar

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Stafsetningin er ekki beinlínis að angra mig, hún er ekki svo slæm. Það er miklu frekar óskýr og flöktandi hugsun þegar höfundur veður úr einu í annað sem gerir það erfitt að lesa þessa grein.

Re: Hunted by a number!!!

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þú ert með 66 stig! Ég var að reikna út innheimtubréf um daginn og sló inn tölur í forrit og reiknaði dráttarvexti og virðisauka, og fékk út 166.666 krónur. Svo var ég að slá inn vörur á kassa í búð og verðið var samtals 666 krónur. Bróðir minn var að ganga á Klapparstíg og sá mótórhjól með númerið 666 lagt við stöðumæli 666. Þetta getur verið tilviljun, en einnig tekur maður eftir þessu af því að númerið er svo þekkt, þannig að maður er ómeðvitað að leita að því. Það getur verið um...

Re: Könnunin

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Nei. Það er það sem ég var að segja. En mér sýnist á kasmír síðunni þinni að þú sért bæði einhvers konar satanisti og goth. Auðvitað getur það farið saman. Þú þarft samt ekki að vera satanisti þótt þú aðhyllist kenningar Darwin, Crowley og Nietzsche. Lavey-ismi er bara léleg afskræming á kenningum þeirra. Það er óþarfi að vera með ruddalegt orðalag og stríðsyfirlýsingar þótt maður trúi á lögmál náttúruvals. Það gerist hvort sem er á eðlilegan hátt án okkar afskipta.

Re: I NEED 2 KNOW!!!

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég held að það sé a.m.k. alveg ómögulegt að setja samasemmerki á milli goth og djöfladýrkunar, eins og gert var í könnuninni sem er núna. Satanisti og djöfladýrkandi er að mínu viti það sama, af því að þeir heillast báðir af hinu illa, myrka og neikvæða í lífinu/dauðanum. Satanistar munu samt örugglega halda því fram að þeirra trú tengist ekki Satan í Biblíunni heldur sé einhvers konar guðlaus heimspeki í anda nihilisma. En af hverju velja þeir þá þetta nafn? Sumir satanistar segja að nafnið...

Re: Af hverju Anarkismi?

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 8 mánuðum
“Þú verður bara að skilja það að ”Mannskepnan hefur bara ekki þennan eiginleika sem anarkistar vilja trúa að hún sé með“ (drapskind).” Hvers konar rök eru það að endurtaka sama hlutinn aftur, og bæta “þú verður bara að skilja” fyrir framan? Hvað ef maður skilur ekki þessi “rök”? Ætlarðu þá að segja það aðeins hærra, og næst kannski að lemja viðkomandi hausinn með kylfu þangað til hann skilur? Ég gæti alveg eins sagt: “þú verður bara að skilja að Guð er til” eða e-ð álíka.

Re: Af hverju Anarkismi?

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Skildirðu ekki hvað ég var að segja? Ég var að verja anarkisma sem lífsmáta og hugarfar. Siggi pönk aðalsprauta Anarkistafélags Íslands aðhyllist svipaða stefnu ef ég skil hann rétt. Skynsamir anarkistar ætla ekki að kollvarpa öllu með blóðugri byltingu, heldur að heyja hugmyndafræðilegt stríð. T.d. mætti heyja áróðursstríð gegn foringjadýrkun og fylgispekt ýmiss konar, og fræða fólk um það að það þarf ekki að fylgja skipunum hvers kyns kennivalds og yfirvalds í blindni. Einnig hafa...

Re: Hvernig á að láta sambandinu ljúka...

í Rómantík fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þetta er ógeðslegt ógeðslegt ógeðslegt. Af hverju geturðu ekki bara verið hreinskilin? Ef þú heldur að þú sért “góð” að grípa til svona nöðrulegra ráða í stað þess að vera hreinskilin er eitthvað að siðferðiskenndinni hjá þér. Ég get ekki talað fyrir alla karlmenn, en ég myndi frekar vilja fá 100% hreinskilnislegan tölvupóst eða SMS heldur en svona viðbjóð.

Re: Af hverju Anarkismi?

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Anarkismi ætti frekar að vera ákveðið hugarfar eða lífspeki sem menn geta tileinkað sér. Ég held að flestir þroskaðir anarkistar í dag séu a.m.k. farnir að hallast að því (gagnstætt unglingum sem eru bara í tímabundinni uppreisn gegn öllu og finnst sjarmerandi að taka öfgafullar stjórnmálakenningar bókstaflega). Það er eitthvað skrítið við það að fólk skuli ekki ljúga, stela og drepa næsta mann eingöngu vegna þess að eitthvað kennivald, s.s. lögin, segja því að það sé bannað. Þá er fólk í...

Re: Raspútín:Jésús endurfæddur eða Satan holdi klæddur

í Dulspeki fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Frábær grein! Ég fletti Rasputin upp í Britannica. Þessi sértrúarhópur hét víst Khlysty, og það er sagt að Rasputin hafi brenglað kenningar þeirra yfir í “the doctrine that one was nearest God when feeling “holy passionlessness” and that the best way to reach such a state was through the sexual exhaustion that came after prolonged debauchery.” Ekkert minnst á fyrirgefningu. Þetta minnir á það algleymi sem gnostísistar reyndu að komast í með því að ofbjóða líkamanum ýmist með skorti (föstum...

Re: 360° Kynna: AJAX (live) Biggi Veira (T-world)

í Danstónlist fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þetta hljómar spennandi! Það má vel vera að maður kíki. Hvað kostari inn?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok