Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Ring

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég geri ráð fyrir að hann sé að tala um fyrstu myndina, sem heitir Ring eða Ringu á japönsku.

Re: Does Snæja rule?!

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Nú ég hélt að það væri þveröfugt. Guð hundur frá hundastörnunni Síríus en djöfullinn köttur. Það er lógískara. T.d. ef maður les DOG afturábak kemur út GOD. Mér er ekki alvara með þessu.

Re: Er rafmúsik framtíðin?

í Raftónlist fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mér finnst þetta voða leiðinlegt, en ég ákvað að gefa íslenskri raftónlist séns á Airwaves og var ekki yfir mig hrifinn. Biogen, maðurinn sem átti senuna fyrir nokkrum árum er að mínu mati búinn að tapa sér (a.m.k. tónlistarlega séð). Hitt var e-ð Warp rúnk eins og vanalega. Ekkert nýtt eða ferskt, miklar endurtekningar og lítil “sál”. Enginn draugur í þessum vélum. Kannski hef ég verið svona rosalega óheppinn með þennan púls sem ég tók á íslenskri raftónlistarsenu. Endilega bendið mér á...

Re: Er rafmúsik framtíðin?

í Raftónlist fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Tek undir með Der. Raftónlist er ekki framtíðin og rokktónlist ekki heldur. Góð tónlist er það eina sem heldur velli, sama hvað hún heitir. En raftónlist undanfarinna nokkurra ára hefur ekki verið upp á marga fiska, nema í undantekningatilvikum. Það er eins og þessi mikla bylting sem varð í kringum '90 sé búin að keyra í kaf. Þróunin hefur stöðvast, sándið er ýmist “vintage” eða of stafrænt. Áhugaverðustu hlutirnir eru að gerast hjá rokktónlistarmönnum og mönnum sem kunna á hefðbundin...

Re: Hvað er á seyði í sannleikskenningum?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég skammast mín ekkert fyrir að segja að ég skil ekki þessar sannleikskenningar og átta mig ekki á notagildi eða skemmtanagildi þess að pæla yfirleitt í þeim. En það er gaman að sjá að þú ert farinn að skrifa greinar aftur, Gthth. Komið nóg af þessu trúarbragðarugli hérna.

Re: Hugleiðsla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Frábær grein.

Re: The Voluntary Human Extinction Movement

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
En svo finnum við alltaf lækningar við sjúkdómunum þegar grey náttúran reynir að leiðrétta mistökin.

Re: Hvaða gas notuðu Rússar

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
<b>fentanyl</b> also called N -(1-phenethyl-4-piperidyl)propionanilide, synthetic narcotic analgesic drug, the most potent narcotic in clinical use (50 to 100 times more potent than morphine). The citrate salt, fentanyl citrate, is administered by injection, either intramuscularly or intravenously, sometimes in combination with a potent tranquillizer. The duration of its pain-relieving action is short.

Re: Skítalykt af ritgerðinni minni...

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta gæti nú hafa hjálpað til með einkunnina. Eins og flestir vita fylgir því vellíðunartilfinning að hafa hægðir. Sagan segir að Marteinn Lúther hafi fengið sína trúarlegu upplifun á klósettinu. Þannig að þú skalt bara vera þakklátur fyrir skítalyktina. Annars hefðirðu kannski bara fengið 8 eða 7.

Re: ljósmyndarar Internetsinns

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það ætti að vera ólöglegt að birta mynd gegn vilja þess sem er á myndinni. Víða erlendis er hreinlega bannað að taka myndir á skemmtunum nema menn séu með sérstakt leyfi frá eigendum staðarins, og séu þá helst blaðaljósmyndarar eða atvinnuljósmyndarar. Þessar digital vélar eru náttúrulega nýtt fyrirbæri og Íslendingar eru ekki alveg búnir að fatta þetta. Ég lenti í því erlendis að fólk hótaði mér öllu illu þegar ég tók óvænt myndir af því á skemmtistað. Þá laug ég að þetta væri fyrir...

Re: Neðanjarðarlestir

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Góð tillaga. Það er löngu kominn tími til að Íslendingar fari aðeins að slaka á í bílakaupunum og hugi meira að almenningssamgöngunum.

Re: Strákar, er þetta satt?

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þú vilt kannski deila með okkur hvað þessi bók heitir og eftir hvaða félagsfræðing hún er?

Nei

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta eru alhæfingar um steríótýpíska karlmenn, engin algild lögmál. Ég er viss um þú hefðir ekki verið sátt ef einhver alhæfði svona um konur. Við eigum að vera svo einfaldir og þið svo flóknar. Ég viðurkenni þó að þetta er fyndið.

Re: Hermaður í her drottins.

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“Áfram, Kristsmenn, krossmenn, kóngsmenn erum vér. Fram í stríðið stefnið, sterki æskuher.” Þetta var sungið í Vatnaskógi í gamla daga. Ég er ekki alveg viss hvað þú ert að fara nákvæmlega með þessari grein. Ok trúarbrögð geta afvegaleitt vitleysinga og fengið þá til að fremja glæpi í nafni trúarinnar? Leyniskyttan í Bandaríkjunum er nýjasta dæmið um vitfirring sem notar trúarbrögð sem afsökun. Eða var það ekki? Hann á a.m.k. að vera múslimi. Svo þurfti hann endilega að koma óorði á tarot í...

Re: Kertagaldur: Til að öðlast hamingju

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það sem flestir kalla tilviljanir var t.d. fyrir sálfræðingnum Carl Jung “syncronicities”. Merriam-Webster: syn·chro·nic·i·ty 1 : the quality or fact of being synchronous 2 : the coincidental occurrence of events and especially psychic events (as similar thoughts in widely separated persons or a mental image of an unexpected event before it happens) that seem related but are not explained by conventional mechanisms of causality – used especially in the psychology of C. G. Jung Málið með...

Re: Ísland í dag!!!!!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 6 mánuðum
mér finnst þetta fín grein

Re: Draumaráðningar (byggt á tölum)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
hmmm, mig dreymdi töluna 26 um daginn…mundi ekkert í hvaða samhengi en fékk á tilfinninguna að hún væri mjög mikilvæg.

Re: Myndlistar áhugamál!!!

í Hugi fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég held að það skrifi enginn lengur af því að þessi korkur er svo óáberandi að það veit næstum enginn af honum. Greinarnar birtast ekki sem greinar á Bókmennta og listaáhugamálinu og ennþá síður á forsíðunni. Það vantar heilt áhugamál fyrir þetta.

Re: Tarotspil innihaldsrík speki eða bara spáspil???

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Eitthvað var þessi Amazon linkur skrítinn. Bókin sem ég ætlaði að nefna heitir The Second Messiah, er eftir Christopher Knight og Thomas Lomas og er til á Borgarbókasafninu. Þar koma fram athyglisverðar kenningar um kristindóm, templara, tarot, frímúrara og fleira. Auðvitað voru þetta allt öðlingsmenn upp til hópa, bara svolítið misskildir á sínum tíma.

Re: Myndlistar áhugamál!!!

í Hugi fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Já já já!!! Það vantar myndlistaráhugamál. Ég veit ekki hver væri besti stjórnandinn. Kannski einhver af þeim sem hafa einhvern tímann tjáð sig um myndlist hérna, en það væru þá helst ég sjálfur, Kokos, Gthth eða Hokeypokey. Isjs er greinilega frábær listamaður en ég veit ekki hvort hann eyðir miklum tíma hérna á Huga. Svo er náttúrulega Ingi myndasögusnillingur en hann sérhæfir sig kannski í þeim. Ert þú myndlistarmaður Amon? Ég hef aldrei heyrt í þér áður. Hvers vegna ættir þú að vera...

Re: Litavandræði

í Heimilið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Og hvaða litur varð fyrir valinu?

Re: Tarotspil innihaldsrík speki eða bara spáspil???

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er nú álitamál hversu kristnir Musterisriddararnir voru, a.m.k. í hefðbundnum skilningi. Þeir fundu t.d. upp Baphomet (maður með geitarhöfuð, konubrjóst og svarta vængi), og voru á endanum allir brenndir á báli af rannsóknarréttinum fyrir villutrú. Þú getur fræðst um þá hérna: http://www.templarhistory.com/ Þessa kenningu að þeir hefðu búið til tarotspilin las ég í þessari bók: http://www.amazon.com/exec/obidos/tg/detail/-/186 2042489/qid=1035536901/sr=8-5/ref=sr_8_5/102-8310171-62...

Re: my site back

í Myndasögur fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Flott síða. Þú ert mjög flinkur teiknari.

Re: One love is all we need!

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“One Love, One Heart Let's get together and feel all right” Bob Marley

Re: Stærðfræði og eðlisfræði

í Hugi fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Persónulega finnst mér stærðfræði ekki skemmtileg, en það er víst fullt af fólki sem hefur brennandi áhuga á þessu. Svo myndum við kannski losna við stærðfræðipælingar af heimspekiáhugamálinu. Ég styð þessa tillögu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok