Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Skólaleiða :(

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Segi nú bara, hvað þarftu að fara í ljós? Eyðileggur bara á þér húðina. Annars verður þú bara að ákveða hvað þú vilt gera. Hvaða vinnu ætlarðu að fá með enga menntun? Er hún vel launuð og sæmilega skemmtileg? Og þú gerir þér vonandi grein fyrir því að um leið og þú ert búin að vinna í nokkur ár og komin undan verndarvæng foreldra þinna verður helmingi erfiðara að fara aftur í skóla. Þarftu líka nauðsynlega að vinna svona mikið með skólanum? Hefurðu góða námstækni? Prófaðu að tala við...

Re: Traust stjórnmálamanna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ef það ætti bara að slá á hendina á svona mönnum og segja skamm, hver er þá fælingarmátturinn fyrir aðra sem eru í svipaðri stöðu? Það hefur sýnt sig að fælingarmáttur virkar mjög lítið á “alvöru” glæpamenn sem yfirleitt virðast ekki hugsa mjög mikið um afleiðinga gjörða sinna en hins vegar gæti ég trúað að það virkaði mun betur á embættismenn. Ef ég væri þingmaður sem hefði verið að draga mér fé, þá væri ég núna með hjartað í buxunum og pottþétt héldi því ekki áfram. Auðvitað ætlar sér...

Re: Þegar fólk fer að deyja úr hungri

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ef þú hefur ekki nema 100 þús. á mánuði, þá borgarðu ekkert nein 40% í skatt. Þú borgar fyrst 4% í lífeyrissjóð, skattur reiknast af restinni, 37 þús. kall sem fer niður í rúm 10 þegar búið er að draga persónuafsláttinn frá þannig að þú ættir að eiga tæpar 86 þús. kr. eftir að búið er að taka bæði lífeyrissjóð og skatt. Það sem fólk getur grætt á að vera á atvinnuleysisbótum er að ef það skuldar mikið meðlag eða skatta, þá er ekki farið í bæturnar en ef það væri með laun myndi vera farið í...

Re: spurning?

í Rómantík fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er misjafnt hvenær fólk er tilbúið. Sumt fólk verður aldrei tilbúið. Hins vegar eru mjög margir af þeim sem byrja mjög ungir sem sjá eftir því að hafa ekki beðið með þetta. Ég hef aldrei hitt neinn sem hefur séð eftir að hafa beðið. Alla vega skaltu alls ekki gera neitt nema þú virkilega viljir það og með einhverjum sem þú virkilega vilt gera það með. Einhver sem þrýstir á þig að stunda kynlíf áður en þú ert tilbúin elskar þig ekki heldur er að nota þig. Svo er líka annað að kynlífi...

Re: Hálfvitar?

í Tilveran fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Mér finnst þetta nú bara sniðugt hjá honum :)

Re: Límmiðar á ísskáp

í Heimilið fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Kroppaðu það af sem þú getur með nöglunum, ekki neinu beittu svo það komi ekki rispur, þú getur svo notað límband, líma, rífa, líma rífa, til að ná slatta af bréfinu og líminu sem er eftir og fyrir það síðasta seturðu kveikjarabensín (sjoppa) eða hreinsað bensín (apótek) í bómull og strýkur yfir. Svínvirkar.

Re: strætó

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það hlýtur þá að vera í gegnum skólana því ég man ekki eftir neinu svona þegar ég var í Toronto. Námsmenn þar geta að vísu fengið lægri fargjöld, ca. 30% lægri fyrir miða eða ef þeir kaupa mánaðarkort fá þeir ca. 15% afslátt. Fullt gjald fyrir mánaðarkortið þar er rúmlega 5000 kr. eða dýrara en græna kortið, jafnvel eftir hækkun :)

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það vantar fólk í vinnu á Íslandi. Það er það sem við græðum á að hafa útlendinga hérna. Þó það sé atvinnuleysi, þá hefur það sýnt sig að hinir húðlötu atvinnulausu Íslendingar vilja frekar sitja á rassgatinu og fá bætur heldur en að vinna við störf eins og fiskvinnslu og umönnun á elliheimilum. Hver á annars að skeina ömmu gömlu á Grund ef allar dökku stelpurnar fara? Ætlar þú kannski að gera það? :P

Re: Baugar

í Heilsa fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Borða ferskan mat, mikið af ávöxtum og grænmeti, fisk og kjöt sem þú eldar en ekki eitthvað pakkarusl sem þú kaupir og veist ekki hvað er í. Drekka 2-3 lítra af vatni á dag. Sofa heilan helling. Ég fer hins vegar ekki eftir mínum góðu ráðlegginum sjálfur þannig að ég er sko með bauga niður á tær :)

Re: Stærðarmunurinn

í Heilsa fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Á Nutella krukkunni minni stendur að í 19g séu 1,5g prótein sem þýðir að í 100g eru 7,9g prótein. Í osti er ca. 15-25g prótein í hverjum 100g þannig að það fer eftir hvernig osti.

Re: Kanada flug hætt

í Ferðalög fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Gaurinn sem kom þessu af stað er núna að reyna að semja við annað Kanadískt flugfélag þannig að við verðum bara að vona það besta.

Re: Að búa á Englandi

í Ferðalög fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Eins og fleiri hafa sagt, þá er leigan há en það sem flestir fátækir námsmenn gera er að leigja sér saman hús í úthverfi. Þá hefurðu eitt herbergi og kostar ekkert geðveikt og vonandi lendirðu ekki með mjög leiðinlegu fólki í húsi.

Re: Reykjavíkurflugvöllur og nýji borgarstjórinn.

í Flug fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það svarar ekki kostnaði að setja upp lest. Hins vegar er ekkert að því að hafa völlinn þarna áfram. Fínn fyrir sjúkraflug og ef innanlandsflug leggst mestan part af, þá er bara enn minni umferð þarna. Sjálfur bý ég í milljón manna borg í Kanada og er með flugvöll í ca. 1,5km fjarlægð og hef ekki heyrt neitt um að það eigi að færa hann. Hann er ca. 2,5km frá miðbænum. Hins vegar er þetta ekki þeirra eini flugvöllur og er aðallega notaður fyrir einkaflug, leiguflug, kennslu, sjúkraflug og herinn.

Re: PENINGALEYSI!

í Flug fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ætti ekki annars LÍN að lána fyrir flugnámi? Ekki að þeir geri það en þetta er bara eins og hvert annað nám, ekki satt? Alla vega ætti fólk ekki að steypa sér í skuldir til að gera eitthvað svona nema það hafi plan, t.d. ef þú sérð að þú átt stutt eftir og getur fengið vinnu sem flugmaður, þá geturðu tekið lán og drifið þig að klára en þangað til frekar að taka hægt eftir því sem efni standa til. Til að auka tekjurnar geturðu unnið meira eða fengið þér aukavinnu á kvöldin ef vinnan þín býður...

Re: Hann ælir :(

í Hundar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Já, farðu með hann til dýralæknis. Það getur verið að þetta sé ekkert en það getur líka verið merki um eitthvað alvarlegra.

Re: hjálp! EGG!!!

í Gæludýr fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég átti gára og þau verptu nokkrum sinnum. Ef eggið er frjótt, þá ætti hún að unga því út sjálf. Gárarnir mínir höfðu það þannig að kellingin lá á eggjunum en kallinn gaf henni að éta. Þegar ungarnir komu úr eggjunum báru þau mat í þá en um leið og þeir voru orðnir fiðraðir, ekki byrjaðir að fljúga, þá hentu þau þeim úr hreiðrinu til að geta byrjað aftur að verpa.

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég sagði aldrei að það væri í lagi að koma illa fram við aðra. Hins vegar er það frekar augljóst að ef þú kemur illa fram við einhvern, hvort sem hann er útlendingur eða ekki, þá eru líkur á að hann fari að koma illa fram við þig. Ef svo vill til að hann er útlendingur og þú og allir vinir þínir koma illa fram við hann vegna þess og þið eru stór hluti af þeim Íslendingum sem hann umgengst, þá er heldur ekkert skrítið að hann haldi að allir eða flestir Íslendingar séu rasistar og sé...

Re: Virkjanir og vetni

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég held að það sé nú ekki bundið að eilífu. Það má líka alltaf finna fleiri staði til að virkja eða setja upp slatta af vindmyllum eða eitthvað. Alltaf rok á Íslandi.

Re: Lögreglan er alveg!!!!!

í Mótorhjól fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ef löggan er stopp þá þurfa þeir ekkert að vera með ljós frekar en aðrir. Ef þeir eru að keyra ljóslausir gæti það verið hættulegt. Ég held að það hafi bara meiri áhrif á þá sem keyra of hratt ef þeir eru teknir og sektaðir af því þeir sáu ekki lögguna heldur en ef þeir sjá lögguna útí kanti og þurfa að hægja á sér í smástund.

Re: Hvað er í gangi sko ???

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þeir sem gerðu þetta dóu náttúrulega líka í sprengingunni eða þannig. Annars fannst mér þetta koma mjög lítið við mig. Það eru alltaf einhverjar sprengingar, stríð og hungursneyðir einhvers staðar í heiminum.

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég bý í Kanada og hér eru menn mjög duglegir að flytja inn vinnuafl. Þjóðin telur tæpar 32 milljónir og er að taka inn um 250 þús manns árlega. Þeir hins vegar gera sér grein fyrir, öfugt við Íslendinga, að þeir þurfa á þessum útlendingum að halda til að styrkja efnahag landsins þannig að þeir bjóða þá bara velkomna. Ég hef heldur ekki séð annað en að samskipti allra þjóða og kynþátta gangi bara nokkuð vel. Ég hef bæði búið í borg þar sem dökkir voru líklega fleiri en hvítir og líka í borg...

Re: Burt með barnastærðir í tískubúðum!

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 4 mánuðum
En hvað með aumingja litlu og mjóu konurnar sem passa í þessi föt? Eiga þær þá bara að ganga í barnafötum? :)

Re: Smá vandræði

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ef þú ert sönn vinkona, þá segirðu henni sannleikann. Farðu bara fínt í það og já, þú getur boðist til að hjálpa henni að mála sig eða sýna henni hvað væri flottara.

Re: Ruslpóstur

í Tilveran fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Segðu bara liðinu sem sendir þér svona kjaftæði að þú fáir allt of mikið af þessu og ef það hætti ekki að senda þér þessi keðjubréf munir þú neyðast til að loka á allan póst frá þeim. Ef það hættir ekki, þá ráðlegg ég bara að gera alvöru úr því og loka á þá. Hins vegar ef einhver er að senda á þig sem þú þekkir ekki, þá skaltu kvarta yfir honum við þá internetþjónustu sem hann er með aðgang hjá.

Re: strætó

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þú getur keypt þér miða sem er strax skárra. Unglingamiðar fyrir 12-18 ára kosta 1200 kall fyrir 10 miða sem er 120 kall farið. Kannski smá útgjöld þegar þú kaupir miðana en spáðu að þú ert að spara þúsund kall fyrir hverjar 10 ferðir!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok