Ég veit ekki hver selur hann á Íslandi en í Kanada virðist hann vera seldur bara í kjörbúðum. Ég er að venja kisuna mína á hann og henni finnst hann svo góður að hún tínir Whiskas kexin úr dallinum og skilur IAMS-ið eftir :) Ég átti líka hund í nærri 15 ár sem lifði á dósamat, súpermarket kexi, afgöngum, beinum, grillmat, kartöluhýði, nammi og hverju sem til féll (eða féll á gólfið). Reyndar þurfti hann að fara í tannhreinsun nokkrum sinnum á ævinni en annars virtist hann braggast ágætlega.