Þegar ég fer að versla vil ég að það sé sem skemmtilegast en hvernig er það hægt þegar mar passar ekki í fötin í búðunum nema stærð l og xl og ekki er ég nú stór manneskja né breið!Mar verður bara hreinlega þunglyndur í þessum verslunarferðum! þetta er bara óþolandi, common það eru flestar konur með mjaðmir og rass og brjóst og það er bara óeðlilegt að henda þeim í stærð xl og stimpla hana feita! ég er ekkert smá pissed off út af þessu og ég veit að þið stelpurnar eruð sammála mér!
Það var gerð skoðanakönnun út í Bretlandi, farið var með 10 ára stelpu í allar helstu tískubúðirnar og stærð small passaði fínt á hana…hingað og ekki lengra það verður að fara að gera eitthvað í þessu og ekki láta þessar fyrirsætuhorrenglur stjórna tískumarkaðinum :( og hvað með bara að koma með fyrirsætur sem eru með eitthvað utan á sér meira en skinn!!