Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: kærumál = æstifrétt = gaman hjá fréttamönnum

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Rebel: Sá myrti kemur ekki til baka. Hvað með t.d. geðveikan mann sem drepur einhvern og er ekki ábyrgur gerða sinna? Svo fer hann á lyf og er fylgst með að hann taki þau og þá er hann í lagi. Af hverju ætti slíkur maður að sitja í steininum? Bara til þess að fjölskyldu hins myrta líði betur? Á dómskerfið þá alltaf að snúast um hefnd?

Re: kærumál = æstifrétt = gaman hjá fréttamönnum

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Í kerfinu mínu væru það hrikaleg mistök ef hann slyppi út aftur án þess að hafa betrast neitt en ef hann nauðgaði aftur, þá myndi kerfið líklega skilgreina hann sem óforbetranlegan síbrotamann og senda hann á lokað sveitaheimili að prjóna vettlinga það sem eftir væri eða kannski hefði ég bara 3 strikes eins og Kalifornia. Nú hef ég ekki hugmynd um hvort mitt kerfi myndi virka eitthvað betur en mér finnst þetta kerfi sem við höfum í dag ennþá vitlausara. Hvað á t.d. að gera við menn eins og...

Re: kærumál = æstifrétt = gaman hjá fréttamönnum

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég sé bara ekkert vit í að setja verðmiða á glæpi. Ef eitt morð kostar 30 ár, hvað verður þá um morðingjann eftir 30 ár? Hversu hæfur er hann til að lifa í þjóðfélaginu eftir að hafa setið í steininum svo lengi? Það sem ég vil gera er að endurhæfa þessa menn. Koma þeim í skilning um að það sem þeir gerðu var rangt og þá mun samviska þeirra sjá alfarið um að refsa þeim. Mér finnst það mun minni skaði í heildina að gera það og sleppa þeim svo út eftir nokkurra ára fangelsi meðan þeir eru enn...

Re: Staða innflytjendamála í Danmörku í stórum dráttum

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Reyndar hef ég heyrt þetta sama að 2. kynslóð innflytjenda sé oft til vandræða. 1. kynslóð kemur í leit að betra lífi. Þeir eiga oft í mismunandi miklum erfiðleikum með að fóta sig í nýja landinu og læra málið en gera yfirleitt sitt besta að búa sér betra líf því til þess komu þeir. Það sem gerist oft með 2. kynslóðina er að þeir sem börn eru fljótari að læra tungumál nýja landsins og lenda því oft í að hjálpa og jafnvel alfarið sjá um mjög margt fyrir foreldra sína. Því er hætt við að...

Re: Líkamlegt ofbeldi er glæpur, líka gagnvart konum.

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það eru reyndar líka til konur sem berja karlmenn. Sumar konur eru sterkari en sumir karlmenn og sumir eru bara svo góðir í sér að þeir berja ekki konur, jafnvel þó þær séu að berja þá. Hins vegar er munurinn sá að þessir menn geta ekki leitað til lögreglu vegna þess að það yrði hlegið að þeim og ef þeir gera ekki það sem konan vill, þá er mjög auðvelt fyrir hana að hringja í lögguna og halda því fram að hann hafi verið að berja hana og þá er það hann sem löggan kemur að sækja.

Re: Svar frá menntamálaráðherra

í Linux fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég leitaði að því á vefnum og fann á vinnumalastofnun.is að fullar bætur eru 3.574 kr. á dag sem greiðist fyrir alla daga nema helgar. Það gera 35.740 fyrir hverjar tvær vikur en þar sem það eru aðeins meira en 4 vikur í mánuði, reyndar 4 og 1/3, þá kemur þetta út sem 77.437 á mánuði. Svo eru 4% aukalega fyrir hvern krakka og af allri summunni er svo dregið 4% í lífeyrissjóð. Ætli það sé svo ekki borgaður skattur af þeim líka. Manni finnst þetta samt svo lítið að þetta ætti að vera...

Re: Svar frá menntamálaráðherra

í Linux fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég tékkaði á þessu á vefnum og Féló borgar 67 þús. á mánuði en atvinnuleysisbæturnar eru eitthvað aðeins hærri.

Re: þoli ekki letina í mér!!!

í Heilsa fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Mér fannst best að fara á morgnana þegar ég var að æfa. Ég er nefnilega þessi týpa sem glaðvaknar við vekjaraklukkuna og á erfitt með að sofna aftur þannig að fyrst ég var hvort sem er vaknaður, þá var alveg eins gott að fara í ræktina eins og að sitja á stól og bíða eftir að klukkan yrði passleg til að fara að vinna. Þú nærð líka meiri árangri ef þú æfir á morgnana.

Re: Svar frá menntamálaráðherra

í Linux fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég held að féló bæturnar séu sama og atvinnuleysisbætur, sem sagt rétt nóg til að skrimta.

Re: Svefn og vöxtur

í Heilsa fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þú leggur þig á daginn en ert samt þreyttur? Það er ég nú ekki viss um að sé alveg normalt. Þú gætir þjáðst af blóðleysi, sérstaklega ef þú borðar mikið ruslmat eða nammi og tekur ekki járn. Það gæti líka verið eitthvað annað. Stelpa sem ég þekki var svona, alltaf svo þreytt og hún reyndist vera með sykursýki. Alla vega finnst mér að þú ættir að skreppa til heimilislæknisins og ræða þetta eða alla vega prófa að taka fjölvítamín og kannski auka járn.

Re: Ógeðslegt djamm!!!

í Djammið fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er bara svo rosalega erfitt að fá sér bara 2-3 og hætta svo. Alltaf þegar ég reyni það þá enda ég með að halda bara áfram þannig að ég verð annað hvort að sleppa þessu alveg eða hrynja í það. Það eina sem virkar stundum er að taka bara með pening fyrir hvað ég ætla að drekka mikið og vera ekki með nein kort á mér. Ég hef samt aldrei týnt neinu vegna þess að ég hætti þó alltaf áður en ég drepst á víðavangi þó ég hafi einu sinni ælt í næturstrætó :) Segðu mér annars, hvernig týnir maður...

Re: Svar frá menntamálaráðherra

í Linux fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það hefur reyndar lagast eitthvað aðstoð við ungmenni sem eru að klára framhaldsskóla. Mér skilst að það sé núna hægt að vera á bótum frá Féló samhliða því að vera í skóla sem ekki var hægt fyrir nokkrum árum. Annars er nú ekki eins og fólk hafi brennt allar brýr að baki sér þó það sleppi lokaprófum grunnskóla. Ég gerði það á sínum tíma og tók upp þráðinn aftur 18 ára. Fór þá í fornám í stærðfræði en hægferð í flestu öðru og var kominn í almenna ferð strax næstu önn á eftir og hægði ekkert á...

Re: FYRSTUR AÐ SVARA!

í Tilveran fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég held að það sé verið að meina fólk sem svarar grein án þess að segja einu sinni álit heldur segir kannski bara “fyrstur” eða “fyrstur að svara” og ekkert meira. Ég hef séð svoleiðis nokkrum sinnum.

Re: Staða innflytjendamála í Danmörku í stórum dráttum

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Eigi veit ég hvernig manntali frænda vorra Dana er háttað en hér í Vesturheimi ku vera spurt að því í manntali hvaða trú fólkið aðhyllist og þarf ekki að svara því frekar en maður vill. Ég hef alltaf álitið að þessi árátta Hagstofunnar að flokka fólk niður eftir trúfélögum komi vegna þess að trúfélögin fá ákveðinn styrk fyrir hvern meðlim. Er það þannig í Danaveldi líka?

Re: kærumál = æstifrétt = gaman hjá fréttamönnum

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það hefur bara sýnt sig að harðari dómar hafa mjög lítið að segja. T.d. eru mjög harðir dómar yfirleitt í Bandaríkjunum en samt er glæpatíðni þar miklu meiri en í Evrópulöndum þar sem dómar eru mun vægari. Menn sem hafa drepið og sitja inni í 10-16 ár drepa ekki aftur nema þeir séu eitthvað geðveikir og ef þeir væru það, þá ættu þeir náttúrulega aldrei að fara í steininn til að byrja með heldur vera skyldaðir til að taka geðlyf eða vera á réttargeðdeildinni á Sogni ef þeir eru samt sem áður...

Re: kærumál = æstifrétt = gaman hjá fréttamönnum

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Já, þetta er alveg hrikalegt Gunni minn. Nú verður þú víst bara að hætta að nauðga ;) Annars svona í alvöru, þá held ég það bara gott mál að það kæri fleiri. Mjög fáar nauðganir eru kærðar og stelpa sem ég þekki sagði mér að henni hefði verið nauðgað og 3 stelpum sem hún þekkti og aðeins ein af þeim hefði einu sinni reynt að kæra og náði ekki svo langt að gefa einu sinni skýrslu. Hins vegar ætti líka að vera refsing við því ef stelpa lýgur nauðgun upp á einhvern en svoleiðis hefur líka komið...

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það eru fordómar að fullyrða að allir Albanir séu svoleiðis af því þú (eða mamma þín) þekkir ekki alla Albani. Ef ég þekki t.d. bara tvo Íslendinga og þeir eru báðir bjánar og ég dreg þá ályktun af því að allir Íslendingar séu bjánar, þá er ég með fordóma. Fattarðu?

Re: Brandur Enni

í Tilveran fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Já, og hann verður líka “sæddur” af milljónum manna í Evrópu. Orðalagið alveg við hæfi :)

Re: Traust stjórnmálamanna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Fangelsisdómar koma í veg fyrir að sumir stela en ýta undir að þeir sem stela á annað borð steli meiru til að gera það þess virði :)

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er mjög erfitt að dæma um það þegar maður er hvítur hvernig er komið fram við þá sem eru það ekki því það er fullt í gangi sem maður veit ekkert um og fleiri tegundir til af rasisma en þessi sem sést. Mamma mín er t.d. rasisti. Mann myndi aldrei gruna það að sjá svo sakleysislega eldri konu og hún hrækir ekki á útlendinga niðrí bæ eða segir neitt ljótt við þá en þegar hún leigir út sína kjallaraíbúð, þá eiga útlendingar ekki séns og sérlega ekki þeir dökku. Ég þekki líka dæmi þar sem...

Re: Traust stjórnmálamanna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það þarf þá alla vega meiri fúlgu til að gera það þess virði. Þú gætir verið með líflátsdóm og einhverjum myndi samt þykja áhættan þess virði ef hann gæti passað að vera kominn úr landi áður en hann næðist.

Re: Traust stjórnmálamanna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er kannski smá meiri fæling að sitja 2 ár á sveitaheimilinu Kvíabryggju en sitja bara heima hjá sér uppí sófa.

Re: Þegar fólk fer að deyja úr hungri

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Allir 16 ára og eldri sem eru með lögheimili á Íslandi eiga að hafa persónuafslátt. Persónuafslátt færðu með því að leggja skattkortið þitt inn hjá launagreiðanda. Skattkortið áttu að fá sent í pósti í byrjun þess árs sem þú verður 16 ára eða þegar þú flytur lögheimili þitt til landsins. Ef þú ert búinn að týna skattkortinu geturðu fengið nýtt hjá skattstjóra. Ef þú gleymir að leggja skattkortið inn og það er tekinn 40% skattur í einhvern tíma áttu að fá það endurreiknað þegar þú skilar...

Re: Staða innflytjendamála í Danmörku í stórum dráttum

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég bjó í Danmörku í 2 mánuði '96 og man eftir einhverjum fréttum af innflytjendum þá sem voru að berja mann og annan en hins vegar var eiginlega algengara að sjá fréttir af innfæddum Hells Angels og Bandidos að skjóta hvern annan inni í íbúðahverfum ef ekki sprengja hvern annan í loft upp hreinlega.

Re: Traust stjórnmálamanna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ef þeir færu ekki í steininn, þá gæti maðurinn hugsað sem svo að ef hann steli bara nógu helvíti miklu, þá hljóti það ekki allt að sannast og eftir að hann er búinn að segja úpps og borga til baka allt sem þeir vissu um, þá stingur hann bara af til útlanda með allar millurnar sem þeir vissu ekki um. Annars er ég alveg sammála þér í því að Árni er ekki hættulegur þjóðfélaginu þó hann virðist vera siðblindur og líklega mun hann ekki fá tækifæri til að stela neinu í framtíðinni. Ef ég ætti að...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok