Það er alveg satt að við þurfum í raun ekki farsíma né venjulegan síma, getum bara sent bréf, þurfum ekki sjónvarp því við getum lesið, þurfum ekki bækur því við getum bara búið til sögur og sagt, þurfum ekki eldavél því við getum eldað á hlóðum, þurfum ekki ísskáp því við getum geymt matinn í súr eða pækli. Þurfum að sjálfsögðu ekki tölvu. Hins vegar er bara mun þægilegra að vera með farsíma. Ef ég er t.d. í skólanum og ég þarf að hringja í eitthvað fyrirtæki eða panta tíma hjá lækni eða...