Frábærir tónleikar, þeir bestu sem ég hef farið á enda mestu snillingarnir hér á ferð. Ég nánast táraðist þegar að ég heyrði Ecstasy Of Cold byrja. Það sem stóð uppúr voru Master, Fade To Black, One, Nothing Else Matters og Harvester Of Sorrow, þar sem James sagði þetta er fyrir þá sem hafa staðið í gegnum súrt og sætt með okkur. Svo var líka hrein og tær snilld að sjá goðið sitt loksins í eigin persónu og ekki skemmdi það þegar að maður greip nögl frá honum en því miður ekki sem hann hafði...