Headbanger United-Hnakkaplágan
Metal up your ***

Hnakkar hafa ekki farið framjá neinum sómakærum íslendingi. En hnakkar eru ekki bara tónlistin (ef tónlist mætti kalla). Hnakkismi, eins og ég kýs að kalla það, ristir dýpra. Karlhnakkar eru með hættulegri og árásagjarnari skepnum jarðkringlunnar. Það eitt að horfa vitlaust á ofgelað “hár” þeirra, ef hár skal kalla, þá á maður á hættu alvarlegar barsmíðar.
Kvenhnakkar eru hins vegar önnur tegund. Sú tegund virðist yfir sig hrifin af karlhnökkum, en er ekki alveg eins vitlaus. Kvenhnakkar geta til að mynda haldið uppi samræðum við heilbrigða Íslandinga (þá á ég við þá sem hnakkabölið hefur ekki náð til eða eru frelsaðir undan hnakkabölinu. Kallast þeir þá oftar en ekki Rokkarar, næst æðsta og virðulegasta titli heimsins, á eftir Headbanger).
Í öllum bíómyndum hafa verið einhverjir Hnakkar. Svarthöfði var mikill hnakki, því hann faldi sitt rétta andlit með grímu. Svo sprengdi hann líka upp plánetu, sem aðeins Hnakki gæti gert.
Lord of the rings er ein besta Hnakka ádeila sem gerð hefur verið. Þar eru nokkrir smávaxnir Headbangerar fengnir til að eyðileggja máttugasta vopn Hnakkanna. Þá taka Hnakkarnir upp á því að fjölga sér í stórum stíl, en hætta að bera á sig rakakrem og gela hárið, og sýna þá sitt rétta andlit, það er andlit orkanna í myndinni.
Síðan bætast nokkrir Headbangerar í hóp stuttlinganna, Headbanger Aragorn, Headbanger Legolas, Headanger Gimli og Headbanger Gandalf. Saman tekst þessu Föruneyti Headbangera að gera útaf við mesta Hnakka allra tíma, Sauron, en ef þú endurraðar stöfunum í nafninu Sauron þá færðu út Hnakkmanninn, og einnig FM 95djö.

Eins og ég hef bent glögglega á í grein minni þá eru Hnakkar plága. Þeir fjölga sér eins og kanínur, og virða engin velsæmismörk sem heiðarlegir Rokkarar, Headbangerar og aðrir frjálsir menn (konur eru líka menn) gera. Því óska ég eftir HELL YEAH frá öllum sem standa með mér í að draga úr mætti Hnakkaveldisins, sem ætlar að tröllgela íslenskt samfélag.

Ég kveð á orðum meistara Hetfields sem lagði leið sína til Íslands fyrir stuttu:
“Hail satan if you please”