Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hress
hress Notandi frá fornöld Karlmaður
5.602 stig

Fylkismenn komnir áfram (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Hlutskipti liðanna tveggja sem mættust í sextán liða úrslitum bikarsins í Vesturbænum í gær hefur verið misjafnt í sumar. Fylkismenn eru efstir í úrvalsdeildinni og í gærkvöld komust þeir áfram í 8.liða úrslit bikarsins. KR-ingar ráku hins vegar þjálfara sinn fyrir skömmu, eru neðarlega í deildinni og dottnir út úr bikarnum. Fylkir vann stórleikinn í gær 1-0 en sigurinn hefði getað endað hvorum megin sem var. Ein afgerandi mistök réðu úrslitum. Þau gerði Gunnar Einarsson á 5. mínútu síðari...

Grindavík vann en KS hyggst kæra! (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þrír leikir fóru fram í sextán liða úrslitum Coca Cola bikarsins í gær og unnust þeir allir á útivelli. Grindavík vann KS 3-1 á Siglufirði. Heimamenn hyggjast kæra leikinn því vafasamt er að Zoran Djuric og Ólafur Ívar Jónsson séu gjaldgengir með liði Grindavíkur í bikarkeppninni þar sem þeir léku með GG, venslafélagi Grindavíkur, í 2. umferð keppninnar. Þórður Birgisson kom KS yfir í leiknum en Scott Ramsey, Ray Anthony Jónsson og Óli Stefán Flóventsson skoruðu mörk Grindavíkur. Úrslitin...

Staðan í Símadeild kvenna og 2.Deild karla (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
KR-stúlkur unnu stórsigur á Grindavík í leik liðanna í 7. umferð Símadeildar kvenna á þriðjudaginn og halda því enn í við toppliðin tvö ÍBV og Breiðablik, en Blikastúlkur töpuðu mjög óvænt gegn Stjörnunni 1-0, þar sem Freydís Bjarnadóttir skoraði sigurmark Stjörnustúlkna í fyrri hálfleik. KR sigraði Grindavík 9-0 þar sem Olga nokkur Færseth skoraði þrennu. Olga er þá markahæsta KR-stúlkan frá upphafi. Þær Ásdís Þorgilsdóttir og Hrefna Huld Jóhannesdóttir skoruðu sitt hvor tvö mörkin. Þá...

KA komnir áfram í bikarnum (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
KA er komið áfram í Coca Cola bikarnum eftir að hafa slegið út lið Víðis úr Garði. KA-menn þurftu svo sannarlega að hafa fyrir sigrinum því leikurinn fór í framlengingu eftir markalausar 90 mínútur og þar var það Þorvaldur Makan Sigurbjörnsson sem skoraði tvö mörk og kom KA því í átta liða úrslitin. Hér að neðan er síðan skrá yfir alla leikina í 16.liða úrslitum bikarsins. Þri.03.júl. Víðir - KA 0-2 Mið.04.júl. 20:00 Valur - Fram Mið.04.júl. 20:00 KS - Grindavík Mið.04.júl. 20:00 Stjarnan -...

Winnie verður með KR út leiktíðina (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þá er það orðið ljóst, Winnie þjálfar KR út tímabilið. Rekstrarfélag KR og David Winnie hafa gengið frá samkomulagi þess efnis að David þjálfi KR út þetta keppnistímabil. Skotinn hefur þegar stjórnað KR í tveimur deildarleikjum og framundan eru stór verkefni, bikarleikur við Fylki og leikir við Vllaznia í Evrópukeppni meistaraliða. Winnie tók við liðinu er Pétur Pétursson hætti um daginn og hefur hann unnið einn leik og gert eitt jafntefli enn sem komið er. Winnie var jafnframt aðstoðarmaður...

Sex mörk í Kópavoginum (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Tveir leikir fóru fram í áttundu umferð Símadeildarinnar í gær. Lið Breiðabliks var hálf-vængbrotið á móti Keflavík því slatti af leikmönnum liðsins voru í banni eða meiddir. Þar á meðal vantaði varnarjaxlinn Che Bunce en vörn Blika var hræðileg í leiknum. Gestirnir frá Keflavík komust yfir á 17.mínútu með glæsilegum skalla frá Gunnari Oddssyni. Markahrókurinn Guðmundur Steinarsson bætti við marki eftir misskilning í vörn heimamanna og staðan 0-2. Síðasta mark fyrri hálfleiks kom á 38.mínútu...

Fram í djúpum skít (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Í gær fór ég á einn leiðinlegasta leik sem ég hef séð í mjööög langan tíma. Fram mætti KR í Laugardalnum. Fátt var um fína drætti… eða bara fátt um drætti! Eina mark leiksins skoraði Einar Þór fyrir KR eftir 17.mínútur með skalla. Þegar ég reyni að hugsa til baka og finna eitthvað athyglisvert úr leiknum gríp ég í tómt. Þessi leikur var bara ein stór leiðindi. Því miður eru mínir menn í Fram í mjög djúpum skít eftir þennan leik og er það alls ekki ásættanlegt að vera aðeins með þrjú stig...

Kynþáttafordómar í boltanum (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Kynþáttafordómar í íslenska boltanum hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu. Þar sem ég er Framari þá man ég vel eftir svörtum Hollending sem var hjá okkur fyrir tveimur árum, Marcel Oerlemans. Hann fékk að kenna á fordómunum í lokaleik deildarinnar það ár gegn Víkingi. Í því tilfelli komu hróp og niðurlægingar frá einum af leikmanni Víkings. Marcel missti á endanum stjórn á skapi sínu og var rekinn út af með rautt spjald. Nú fyrir stuttu kom upp svipað mál nema þá var einn...

Grindavík tapaði og Ommel er búinn að semja við KR (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Grindavík tapaði í dag fyrri leik sínum gegn svissneska liðinu FC Basel, 0-3, en leikurinn fór fram í Sviss. Hinn 21 árs gamli ítalski miðjumaður Feliciano Margro kom svissneska liðinu yfir eftir aðeins sex mínútur og Kamerúnin Jean Michel Tchouga bætti öðru mark við 12 mínútum síðar. Staðan var því 2-0 í hálfleik fyrir Basel en Herve Tum skoraði síðasta markið fyrir Svisslendingana á 60. mínútu leiksins. Erfitt verkefni bíður Grindvíkinga um næstu helgi þegar seinni leikurinn fer fram í...

Staðan í 1.deildinni (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það virðist vera mjög líklegt að KA-maðurinn Hreinn Hringsson verði markahæstur í 1.deildinni Lið hans tók Gumma Torfa og félaga ÍR-inga í bakaríið í gær með 6-0 sigri, Hreinn skoraði þrennu í leiknum. Nágrannarnir í Þór lágu í Garðabænum gegn Stjörnunni 3-1 og skoraði Garðar Jóhannsson sem öll mörk Stjörnunnar. Þróttur gerði góða ferð á Krókinn og sigruðu Tindastól 4-2 og eru skammt á eftir toppliðunum í fjórða sætinu, og gætu þeir jafnvel blandað sér í baráttuna. Þá unnu Víkingar sigur á...

Dómarinn til liðs við KR! (7 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Fyrirsögnin á þessari grein er mjög undarleg, en sönn! KR-ingar fengu nefnilega óvæntan liðsstyrk í Vesturbænum í gær á móti Breiðablik. Garðar Örn Hinriksson dómari slóst í lið með KR og dæmdi eins og vitlaus maður! Leikurinn byrjaði af miklum krafti og Blikar fengu óskabyrjun eftir sjö mínútna leik þegar Kristján nokkur Brooks skallaði í netið 0-1, Kristján slapp síðan í gegnum vörn KR á 15.mínútu en skaut framhjá. Á 36.mínútu byrjaði svo söngfuglinn Garðar Örn að sýna hvers hann er...

Fylkir burstaði ÍBV! (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þrír leikir fóru fram í gær í Símadeild karla. Stórleikur umferðarinnar fór fram á Skipaskaga og var æsispennandi. ÍA tók á móti Grindavík og sigraði 3-1. Hjörtur Hjartarsson er í hörkuformi þessa stundina og það var ekki liðin mínúta af leiknum þegar hann kom Skagamönnum yfir. Óli Stefán Flóventsson jafnaði metinn með góðu skallamarki eftir hálftíma leik en mínútu síðar skoraði Hjörtur annað mark sitt og heimamenn aftur komnir með forystuna. Þjálfari ÍA, Ólafur Þórðarsson, skipti sjálfum...

Staðan í Símadeild kvenna og 2.Deild karla (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
SÍMADEILD KVENNA: Blikastúlkur trjóna á toppi Símadeildar kvenna eftir öruggan 3-1 sigur á slöppum FH stúlkum í gærkvöldi. Fyrsta mark leiksins skoraði Sarah Pickens eftir aðeins 30 sekúndna leik, en hún skoraði tvö mörk í leiknum og er önnur markahæst í deildinn með tíu mörk á eftir Olgu Færseth, KR, sem hefur skorað ellefu. KR stelpur eru með slakari hóp en undanfarin ár og það sýndi sig í Vestmannaeyjum í gær þar sem ÍBV vann sanngjarnan 3-1 sigur. Grindavík hefur komið á óvart í...

Pétur sagði upp hjá KR! (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Pétur Pétursson sagði í dag upp störfum sínum sem þjálfari úrvalsdeildarliðs KR í knattspyrnu. Undir stjórn Péturs urðu KR-ingar Íslandsmeistarar á síðustu leiktíð en gengi liðsins á þessari leiktíð hefur valdið vonbrigðum. Kornið sem fyllti mælinn var 4-2 tap gegn Val í gær. David Winnie aðstoðarþjálfari KR mun taka við stjórn liðsins til bráðabirgða, og líklega taka við störfum Péturs sem aðalþjálfari liðsins.

Unglingarnir til ÍBV og Valur rekur Stanici (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þeir Lewis Neal og Marc Goodfellow komu til ÍBV í gær samkvæmt www.ibv.is. Um tíma leit út að þessir strákar kæmu alls ekki til ÍBV eins og um hafði verið samið. Samkvæmt heimildum sem berast að utan þá eiga þessir strákar að styrkja leikmannahóp ÍBV mikið. Neal er sókndjarfur miðjumaður en Goodfellow er sóknarmaður og Guðjón Þórðarson spilaði honum nokkuð oft í liði sínu í vetur en hann kom þó oftast inn á sem varamaður. Ekki er vitað hvort þeir verði tilbúnir með ÍBV í leiknum gegn Fylki í...

KR með Hollending til reynslu (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er alveg fulljóst að eitthvað er að hjá KR þessa stundina. Ég ætla nú ekkert að segja mína skoðun á því í þessari grein. Margir telja að eitthvað sálfræðilegt sé í gangi í Vesturbænum en aðrir telja Pétur Pétursson eiga sökina á þessu öllu. KR-ingum hefur ekki tekist að fylla skarðið sem Andri Sigþórsson skildi eftir sig þrátt fyrir margar tilraunir. Moussa Dagnogo hefur alls ekki staðið undir væntingum í framlínunni og fór útaf í fýlu í leiknum gegn Val, sem KR grút-tapaði 4-2! KR hefur...

Íslendingar í sviðsljósinu í Noregi (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þeir Marel Baldvinsson og Pétur Marteinsson skoruðu sitt hvort markið fyrir Stabæk sem vann meistarana í Rosenborg 3-0 í Norska boltanum í gær. Árni Gautur Arason stóð í marki Rosenborgar í leiknum. Marel skoraði fyrir Stabæk á 54. mínútu og þá var staðan 2-0. Pétur Marteinsson bætti þriðja markinu við þremur mínútum síðar. Tryggvi Guðmundsson lék einnig með Stabæk. Þá skoraði Jóhann Guðmundsson eitt af mörkum Lyn, sem vann Tromsö 4-0. Jóhann gerði þriðja mark Lyn á 56. mínútu, en var síðan...

Fyrstu stig Framara (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Framarar sigruðu Skagamenn 1-0 í Símadeildinni í gærkvöld og náðu því sínum fyrstu stigum í sumar. Hefðu Skagamenn sigrað hefðu þeir komist á topp deildarinnar. Ásmundur Arnarson skoraði eina mark leiksins með þrumuskoti eftir fyrirgjöf Daða Guðmundssonar í fyrri hálfleik. Undirritaður er Framari og lét sig ekki vanta á völlinn. Fram-hjartað mitt tók oft kipp í seinni hálfleik þar sem Skagamenn stjórnuðu leiknum. Besta færi þeirra fékk Kári Steinn Reynisson þegar hann slapp einn á móti...

Grindvíkingar komnir áfram (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Grindvíkingar sigruðu liðið Vilash frá Azerbaidzjan að velli, 2:1, í seinni leik þeirra í Intertoto-keppninni, en hann fór fram í Bakú í Azerbajdzhan. Grindavík vann fyrri leikinn, sem fram fór á nýjum velli í Grindavík um síðustu helgi, 1:0 og vinna því 3:1 samanlagt. Mörk Grindvíkinga í Bakú skoruðu þeir Paul McShane á 12. mínútu og Sinisa Kekic á 18. mínútu og voru Grindvíkingar því tveimur mörkum yfir, 2-0, í hálfleik. Heimamaðurinn Akhmedov minnkaði svo muninn í 2:1 á 48. mínútu....

KR - Fylkir 0-0 (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Af mbl.is: KR og Fylkir gerðu markalaust jafntefli í Frostaskjóli í Símadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Fylkismenn geta verið sáttir með að taka eitt stig úr viðureigninni því KR-ingar fengu mun fleiri færi en gestirnir og voru klaufar að skora ekki allavega eitt mark. Fylkismenn spiluðu skynsamlega og sköpuðu sér nokkur færi og með smá heppni hefðu þeir getað stolið sigrinum því þeir voru alltaf hættulegir í sínum upphlaupum. Leikurinn var fjörugur og bæði lið fengið tækifæri til að...

KR - Fylkir í kvöld kl.20 (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Í kvöld fer fram stórleikur í Símadeildinni. Liðin sem börðust um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra kljást í Vesturbænum kl.20:00, KR og Fylkir. Leikurinn er hluti af 10. umferð í Símadeild karla sem verður leikin um miðjan júlí en þessum leik var flýtt vegna þátttöku beggja liða í Evrópukeppni á þeim tíma. KR ingar virðast vera að komast í gang eftir slæma byrjun, Einar Þór Daníelsson er að mínu mati eini leikmaður liðsins sem hefur verið að sýna sitt rétta andlit. Liðið vann öruggan sigur á...

Sigrar hjá Grindavík og FH (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Lokaleikur fimmtu umferðar fór fram í gærkveldi. Grindavík tók á móti ÍBV í fyrsta deildarleiknum á nýjum og stórglæsilegum velli þeirra. Nokkuð hvasst var meðan á leiknum stóð en þrátt fyrir það lögðu uþb. 900 manns leið sína á völlinn. Grétar Hjartarsson er allur að komast í gang og hann skoraði tvö fyrstu mörk leiksins. Besti maður vallarins, Sinisa Kekic, skoraði síðan þriðja mark heimamanna og greinilegt að Grindavík myndi hirða öll stigin. Albert Sævarsson stóð sig vel í markinu þrátt...

Ísland hækkar um þrjú sæti á FIFA listanum (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Á nýjum styrkleikalista FIFA hefur Ísland hækkað sig um þrjú sæti frá listanum sem gefinn var út í maí og er nú í 52. sæti. Heimsmeistarar Frakka hafa aukið forskot sitt á Brasilíu, sem er í öðru sæti, í meira en 20 stig. Þær breytingar sem orðið hafa á stöðu tíu efstu liða eru að Þýskaland og Holland hafa skipt um sæti og er Þýskaland nú í því áttunda en Holland í níunda, England hækkar sig um eitt sæti, í þrettánda, og Króatía hækkar sig um 5 sæti og er nú í 14. sæti listans. Staða efstu...

Fylkir og ÍA á toppinn (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Fylkismenn komust á topp Símadeildarinnar ásamt Skagamönnum eftir 4-2 sigur á Frömurum á Fylkisvelli í gærkvöldi. Leikurinn einkenndist mjög af miklum vindi. Þegar stundarfjórðungur var liðinn gerði Sverrir Sverrisson fyrsta mark heimamanna og kom það úr fyrstu alvöru sókn Fylkis. Fimm mínútum síðar gerði Sævar Þór Gíslason annað markið og það þriðja kom átta mínútum síðar og enn var Sævar Þór á ferðinni, nú úr vítaspyrnu. Þorbjörn Atli Sveinsson minnkaði muninn fyrir Fram á 43. mínútu og...

KR-FYLKIR Í 16 liða úrslitunum (9 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
KR leikur gegn Fylki í 16-liða úrslitunum í Coca Cola bikarnum en dregið var í hádeginu í dag. Hér að neðan má svo sjá alla leikina en þeir eru margir ansi athyglisverðir. Stjarnan - FH, Víkingur - ÍA, KR - Fylkir, KS - Grindavík, Sindri - Keflavík, Valur - Fram, ÍBV - Breiðablik, Víðir Garði - KA. Hvernig haldið þið að þetta fari?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok