Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hress
hress Notandi frá fornöld Karlmaður
5.602 stig

Úrslitin í bikarnum (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Meirihluti leikjanna í 32 liða úrslitum Coca Cola bikarsins er lokið og var lítið um óvænt úrslit. Umfjallanirnar um leikina eru fengnar af www.mbl.is. KR-ingar áttu í vök að verjast í gærkvöldi gegn 1. deildarliði Þróttar. KR-ingar voru afar slakir fyrir hlé, virtust áhugalausir og knattspyrnan var ekki uppá marga fiska - öfugt við Þróttara. Það má velta fyrir sér hvernig leikar hefðu farið ef Þróttur hefði orðið fyrri til að skora. Undir lok fyrri hálfleiks skoraði Sigþór Júlíusson úr...

Enn einn Skotinn til reynslu hjá KR (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Moussa Dagnogo hefur alls ekki staðið undir væntingum í framlínu KR liðsins. Vesturbæingar hafa ekki gefist upp á því að finna leikmann sem getur fyllt skarð Andra Sigþórssonar því nú hafa þeir fengið skoskan framherja til reynslu. Hann heitir Barry Lavety og er 26 ára gamall. Hann er samkvæmt heimildum stór og sterkur og hefur leikið með liðum á borð við Hiberninan og St. Mirren. Hann á einnig að baki leiki með unglingalandsliðum Skotlands. Samkvæmt www.visir.is hafa meiðsli hrjáð hann...

Valur tapaði fyrir ÍA (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Fjórðu umferð Símadeildar karla í knattspyrnu lauk í kvöld með leik Vals og ÍA á Hlíðarenda. Fyrri hálfleikurinn var mjög bragðdaufur en staðan í hálfleik var markalaus. Skagamenn voru sterkari en náðu ekki að skapa sér nægilega hættuleg færi til að skora. Í síðari hálfleik fór Hjörtur Hjartarson á kostum. Hann skoraði fyrsta markið á 49. mínútu eftir langa sendingu frá Gunnlaugi Jónssyni og svo bætti hann öðru marki við á 56. mínútu eftir hann komst einn inn fyrir vörn Valsmanna. Skagamenn...

Keflavík og Fylkir unnu (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Fjórða umferð Símadeildarinnar hófst í gær með tveimur leikjum þar sem Grindavík vann Fram 1-2 og ÍBV vann KR 1-0. KR-ingar eru því sem stendur í fallsæti en næsti leikur þeirra er gegn Keflavík. KR mun skarta nýjum leikmanni í leiknum því hinn óákveðni Andy Roddie hefur gengið til liðs við þá. Í kvöld fóru tveir leikir fram í deildinni. Fylkir vann Breiðablik 0-2 í Kópavoginum. Pétur Björn Jónsson kom gestunum yfir á 25. mínútu eftir slæm mistök hjá varnarmanni Breiðabliks. Þegar fimmtán...

McFarlane ekki enn löglegur og Skotinn ekki til KR (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Errol McFarlane verður að örugglega ekki í leikmannahópi Fylkis þegar það sækir Breiðablik heim á Íslandsmótinu í knattspyrnu í kvöld. Errol er frá Trinidad og Tobago. Árbæingar áttu von á leikheimild fyrir hann frá FIFA en hún barst ekki. McFarlane hefur verið í herbúðum Fylkismanna í rúman mánuð en ekki getað spilað með liðinu þar sem félag hans í Líbanon, Nejmeh, hefur stöðugt neitað að samþykkja félagaskipti hans. Von er á heimild frá FIFA á morgun (mánudag). — Ekki náðust samningar...

Akureyrarliðin efst í B-deildinni (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þórsarar trjóna á toppnum í 1. deild eftir 2:0 sigur á Þrótti á Akureyrarvelli í gær. Besti maður vallarins, Orri Hjaltalín, skoraði fyrra markið og lagði hitt upp fyrir Pétur Kristjánsson. Að loknum fjórum umferðum eru Þórsarar með 10 stig á toppi deildarinnar en KA-menn eru með jafnmörg stig í öðru sæti eftir sigur á KS, 3:1, á Siglufirði. Ari Már Arason kom heimamönnum yfir á mölinni en Hreinn Hringsson jafnaði fimm mínútum síðar. Þorvaldur Makan þrumaði knettinum efst í hornið og Sverrir...

Óvænt staða í Kvennadeildinni (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Óvænt staða er í Símadeild kvenna. Grindavík heldur efsta sætinu eftir þriðju umferðina sem leikin var á mánudaginn. Grindavíkurstúlkur unnu 1-0 sigur á Val og hafa því sigrað alla leiki sína hingað til. ÍBV og Breiðablik mættust í Eyjum, en liðin voru jöfn í 2-3 sæti deildarinnar fyrir umferðina. Það voru Blikastúlkur sem höfðu betur í hörkuleik sem endaði 3-2. Leikur KR og Þór/KA/KS var ójafn í meira lagi og endaði með stórsigri KR-stúlkna 14-0. Olga Færseth skoraði sex mörk í leiknum gegn...

Skoti til reynslu hjá KR (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Fram kemur á heimasíðu KR að skotinn sé til reynslu hjá KR þessa dagana. Hann heitir Andy Roddie og kom til landsins í dag og fór beint á sína fyrstu æfingu. Roddie, sem leikur ýmist á miðjunni eða vinstri kanti, hefur leikið með félögum í Skotlandi, Svíþjóð og Hong Kong. Hann hóf feril sinn hjá Aberdeen og var það Alex Ferguson sem fékk hann til félagsins. Árið 1994 fór hann til Motherwell, þaðan til Ljungskile í Svíþjóð árið 1997, hann lék með St Mirren veturinn 1997-98 en hefur leikið með...

3-0 sigur á Maltverjum (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Íslenska landsliðið sigraði Möltu <B> 3-0 </B> á ljótum Laugardalsvellinum í dag. Leikurinn var liður í undankeppni HM. Það var smá rigningarúði og lítill vindur sem blés á 3.600 áhorfendur sem lögðu leið sína í Dalinn. Íslendingar komust yfir á 8. mínútu þegar Tryggvi Guðmundsson skoraði eftir góðan undirbúning hjá Ríkharði Daðasyni og Helga Sigurðssyni. Ríkharður skoraði svo annað markið á 37. mínútu eftir góða sendingu frá Tryggva. Staðan í hálfleik því 2-0. Okkar menn komust í 3-0 með...

U21 landsliðið vann Möltu (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Íslenska U21 árs landsliðið sigraði U21 árs lið Möltu 3:0 á KR-vellinum í kvöld. Veigar Páll Gunnarsson kom Íslendingum yfir á 40. mínútu, Bjarni Guðjónsson skoraði annað mark Íslendinga á 45. mínútu og það var svo Orri Hjaltalín sem gerði út um leikinn mínútu síðar þegar hann skoraði þriðja markið. A-landslið þjóðanna mætast í undankeppni HM í knattspyrnu á Laugardalsvellinum á morgun klukkan 16:00. Tveir nýir leikmenn koma inn í liðið frá því í sigrinum á Möltu í vor. Auðun Helgason og...

Stanici orðinn löglegur með Val (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Topplið Símadeildarinnar, Valur, hefur fengið rúmenskan vinstrifótar miðjumann sem samkvæmt pappírunum á eftir að verða þeim drjúgur í sumar. Stanici Constantin er 31 árs, á að baki 8 A-landsleiki fyrir Rúmena og hefur skorað 60 mörk í rúmensku 1. deildinni en hann hefur leikið með Sportul Studentese í Rúmeníu. Þá lék hann með liði Minnesota í Bandaríkjunum í þrjú ár skv. heimasíðu Vals. Útlit er fyrir að þrír aðrir leikmenn verði tilbúnir í leikmannahóp Vals fyrir leikinn gegn ÍA en þeir...

Fram stigalaust (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nú þegar þrem umferðum er lokið í Símadeildinni er fram enn án stiga. . Fram tók á móti ÍBV í gær. Leikurinn fór varlega af stað en Framarar voru nokkuð hættulegri og gáfu ekki þumlung eftir. Spil ÍBV var fyrir neðan allar hellur og ekkert gekk hjá þeim í hálfleiknum. Frömurum tókst ekki að skora og staðan í hálfleik var 0-0. ÍBV hafði ekki skorað í þær 225 mínútur sem þeir höfðu spilað í Símadeildinni á þessu sumri. Eini ljósi punktur ÍBV í fyrri hálfleik var spilamennska Atla Jóhannssonar....

Íslensku liðin í Evrópukeppnunum (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Íslensk lið hafa oftast komist áfram úr 1. umferð í forkeppni meistaradeildar Evrópu. KR sló út Birkirkara frá Möltu á síðasta ári og ÍBV vann SK Tirana frá Albaníu fyrir tveimur árum. KR-ingar eiga ágæta möguleika á að komast áfram því þeir eru í sterkari hóp liðanna 22 í 1. umferðinni. KR-ingar dragast gegn einu af liðunum sem eru í veikari hópnum í drættinum: Levadia (Eistland), Barry Town (Wales), Araks (Armenía), Bohemians (Írland), Valletta (Malta), Linfield (Norður-Írland), VB Vágur...

Fylkir missir fyririliða sinn í meiðsli (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fylkisliðið varð fyrir miklu áfalli er fyrirliðinn, Ómar Valdimarsson, sleit hásin í leiknum við Val á Sunnudagskvöldið. Varnarjaxlinn Ómar var skorinn upp í gær af Boga Jónsyni og gekk aðgerðin vel. Ómar má hefja endurhæfingu eftir tvær vikur og en má ekki byrja að skokka fyrr enn í haust. Hann mun því ekki spila meira í sumar og mun skarð hans í vörninni verða vandfyllt en hann lék vel í fyrstu þremur leikjunum. Ómar, sem er 31 árs, hefur leikið með Fylki frá 1995 en áður lék hann með...

Fram - ÍBV frestað (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Búið er að fresta leik Fram og ÍBV sem fram átti að fara í kvöld. Leikurinn hefur verið settur á annað kvöld. Ástæðan fyrir frestuninni er sú að ekki var flugfært frá Eyjum. Verður: Þriðjudaginn 29. maí kl. 20:00 á Valbjarnarvelli Bæði lið þurfa nauðsynlega að sigra á morgun. Fram er eina liðið í deildinni sem hefur enn ekki unnið sér inn stig og þurfa þeir að kippa því í lag. Vestmannaeyjingar hafa ekki náð að skora í tveim fyrstu umferðunum en eru komnir með nýja sóknarmenn, þá Tómas Inga...

Úrslit þriðju umferðar (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nú er öllum leikjum í þriðju umferð Símadeildarinnar lokið fyrir utan leik Fram og ÍBV sem fram fer annað kvöld á Laugardalsvellinum. Umferðin hófst á leik FH og KR á ljótum Kaplakrikavellinum. Nýliðarnir í Hafnarfjarðar-mafíunni eru enn ósigraðir í deildinni en þeir lögðu KR-ingana 2-0. Mörkin voru skoruð með aðeins fjögurra mínútna millibili í fyrri hálfleik. Fyrst Atli Viðar Björnsson á 22. mínútu og síðan Jóhann Möller á 26. mínútu. Báðir nýliðarnir, FH og Valur, eru því taplausir því...

ÍBV að bæta sóknarleikinn (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
ÍBV hefur spilað tvo leiki í Símadeildinni en hefur ekki tekist að koma tuðrunni í net andstæðingana. Njalli þjálfari er þó að reyna að laga þetta, til dæmis með því að fá Tómas Inga til liðsins. Aleksander Ilic frá Júgóslavíu hefur ekki alveg náð sér á strik en er fínn sóknarmaður miðað við leikina sem hann spilaði á undirbúningstímabilinu. Vestmannaeyjingar hafa líka eytt löngum tíma í að reyna að fá Dejan Djokic til Íslands. Erfiðlega hefur gengið að fá öll nauðsynleg leyfi fyrir kappann...

Landsliðshópur Atla (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Atla Eðvaldsson gerir litlar breytingar á hópi íslenska landsliðsins sem mun mæta Maltverjum og Búlgörum 2. og 6. júní næstkomandi. Eina breytingin frá síðasta hóp er sú að Heiðar Helguson kemur inn í stað Ólafs Arnar Bjarnasonar úr Grindavík. Andri Sigþórsson er í hópnum en ekki er samt ljóst hvort hann geti verið með þar sem hann á við einhver meiðsli að stríða. Hópurinn: Árni Gautur Arason, Rosenborg Birkir Kristinsson, ÍBV Rúnar Kristinsson, Lokeren Eyjólfur Sverrisson, Hertha Berlin....

Breiðablik spáð sigri í kvennaboltanum (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fyrirliðar, þjálfarar og forráðamenn liðanna í Símadeild kvenna hittust á Grand Hótel í dag á árlegum kynningarfundi deildarinnar. Breiðabliki er spáð sigri, Valsstúlkum er spáð öðru sætinu og KR því þriðja. Heil umferð verður leikin á fimmtudag, en þá mætast einmitt liðin sem spáð er tveimur efstu sætunum, Valur og Breiðablik. Spáin: Félag Stig 1. Breiðablik 170 2. Valur 163 3. KR 141 4. Stjarnan 119 5. ÍBV 111 6. FH 77 7. Þór/KA/KS 48 8. Grindavík 35 — Fyrstu leikir: fim. 24. maí. 2001 -...

Vandamál með leyfi fyrir útlendinga (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fylkismenn leita nú allra leiða til að ná keppnisleyfi fyrir Errol McFarlane framherja þeirra. Errol, sem er frá Trínidad og Tobago hefur ekki getað tekið þátt í fyrstu leikjum Fylkis þar sem hann hefur ekki fengið leyfið en líbanska liðið Nejmeh sem hann lék með hefur ekki viljað skrifa undir félagaskiptin. Árbæingar hafa sent öll gögn í málinu til FIFA og gera sér vonir um að sambandið gefi út keppnisleyfi fyrir McFarlane í vikunni þannig að þeir geti teflt honum fram í leiknum við Val um...

Dagnogo tryggir KR sigurinn (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Tveir seinustu leikir annarrar umferðar fóru fram í kvöld. Í Vesturbænum fór stórleikur umferðarinnar fram í miklu roki. Skagamenn höfðu yfir í hálfleik eftir stórglæsilegt mark frá Grétari Rafni Steinssyni. Hann átti fast skot fyrir utan teig og boltinn fór beina leið í netið þegar átta mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum. Þegar komið var á 60 mínútu gerðu Skagamenn sig seka um hræðileg varnarmistök sem Einar Þór Daníelsson nýtti vel og jafnaði metinn. Það var síðan Frakkinn Moussa...

Valur og Keflavík upp að Blikum (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þrír leikir fóru fram í annarri umferð Símadeildarinnar í knattspyrnu í gær. Blikar unnu Framara 1-0. Nokkuð óvænt úrslit urðu í Keflavík þar sem heimamenn sigruðu Fylki 2:1. Haukur Ingi Guðnason kom Keflvíkingum yfir á 13. mínútu og Guðmundur Steinarsson skoraði annað mark heimamanna á 67. mínútu. Sverrir Sverrisson skoraði eina mark Fylkis á 70. mínútu. Haukur Ingi slapp svo tvisvar sinnum einn á móti Kjartani Sturlusyni en náði ekki að skora. Valur og Grindavík léku á Hlíðarenda og þar...

Blikar með fullt hús (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
ÖÖnnur umferð Símadeildarinnar hófst með leik Breiðabliks og Fram í dag. Blikar sigruðu Blámennina, 1:0 á Kópavogsvelli, og hafa því sigrað í báðum leikjum sínum í deildinni. Eina mark leiksins kom á 17. mínútu þegar Þorsteinn Sveinsson skoraði eftir hornspyrnu Kristófer Sigurgeirssonar, fyrrum Framara. Safamýrarpiltar hafa því tapað tveim fyrstu leikjum sínum í deildinni sem veitir ekki á gott því Frömurum er spáð erfiðu sumri og þurfa að fara að safna stigum sem fyrst. Lítið var um...

Úrslit fyrstu leikja í neðri deildunum (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fyrsta umferð fyrstu deildar hófst á föstudag og lýkur á morgun með leik Dalvíkur og KA. 18. maí. Þróttur R. 0-0 Víkingur 18. maí. Tindastóll 1-1 Stjarnan 18. maí. Þór A. 3-0 Leiftur 19. maí. ÍR 1-1 KS Þá er þrem leikjum í annarri deildinni lokið 18. maí. Víðir 0-2 Haukar 18. maí. Selfoss 2-0 Skallagrímur 19. maí. Afturelding 3-1 Nökkvi 20. maí. 14:00 Sindri - Leiknir R. 20. maí. 14:00 Léttir - KÍB

Fyrstu umferð lokið (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fyrsta umferð Símadeildarinnar hófst á þriðjudag þar sem Fylkir vann KR 1-0. Í kvöld lauk síðan umferðinni með fjórum leikjum. Úrslitin koma hér: Akranes 2:2 FH 0:1 Jón Þ. Stefánsson 30. mín 1:1 Hjörtur Hjartarson(v) 33. mín 2:1 Hjörtur Hjartarson 81. mín 2:2 Jóhann Möller 93. mín Fram 2:3 Valur 1:0 Þorbjörn Atli Sveinsson 10. mín 1:1 Matthías Guðmundsson 31. mín 1:2 Martin Gustafsson 60. mín 1:3 Sigurbjörn Hreiðarsson 62. mín 2:3 Ásmundur Arnarsson 90. mín Breiðablik 1:0 ÍBV 1:0 Kristján...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok