KR - Fylkir 0-0 Af mbl.is:

KR og Fylkir gerðu markalaust jafntefli í Frostaskjóli í Símadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Fylkismenn geta verið sáttir með að taka eitt stig úr viðureigninni því KR-ingar fengu mun fleiri færi en gestirnir og voru klaufar að skora ekki allavega eitt mark. Fylkismenn spiluðu skynsamlega og sköpuðu sér nokkur færi og með smá heppni hefðu þeir getað stolið sigrinum því þeir voru alltaf hættulegir í sínum upphlaupum.

Leikurinn var fjörugur og bæði lið fengið tækifæri til að skora. KR-ingar fengu fleiri færi en þeir voru mistækir upp við mark Fylkismanna en gestirnir voru óheppnir að ná ekki forystunni undir lok fyrri hálfleiks þegar þeir áttu skot í markstöng.