Pétur sagði upp hjá KR! Pétur Pétursson sagði í dag upp störfum sínum sem þjálfari úrvalsdeildarliðs KR í knattspyrnu. Undir stjórn Péturs urðu KR-ingar Íslandsmeistarar á síðustu leiktíð en gengi liðsins á þessari leiktíð hefur valdið vonbrigðum. Kornið sem fyllti mælinn var 4-2 tap gegn Val í gær. David Winnie aðstoðarþjálfari KR mun taka við stjórn liðsins til bráðabirgða, og líklega taka við störfum Péturs sem aðalþjálfari liðsins.