Winnie verður með KR út leiktíðina Þá er það orðið ljóst, Winnie þjálfar KR út tímabilið. Rekstrarfélag KR og David Winnie hafa gengið frá samkomulagi þess efnis að David þjálfi KR út þetta keppnistímabil. Skotinn hefur þegar stjórnað KR í tveimur deildarleikjum og framundan eru stór verkefni, bikarleikur við Fylki og leikir við Vllaznia í Evrópukeppni meistaraliða. Winnie tók við liðinu er Pétur Pétursson hætti um daginn og hefur hann unnið einn leik og gert eitt jafntefli enn sem komið er. Winnie var jafnframt aðstoðarmaður Péturs í sumar.