Fram kemur á heimsíðu KR í dag að Nýsjálendingurinn Che Bunce hafi tjáð forráðamönnum KR í morgun að hann hafi ákveðið að spila með Breiðablik næsta sumar og þakkaði því pent fyrir það tilboð sem KR hafi boðið honum.

Bunce hafði lofað Blikum því að spila með þeim ef hann kæmi hingað í sumar og hann virðist vera maður orða sinna.