Stefan Effenberg vill spila í London Stefan Effenberg hefur lýst því yfir að hann vilji spila á Englandi þegar samningur hans rennur út 2002 og að aðeins London komi til greina.
Effenberg segist vera hrifinn af Arsenal og sérstaklega Tottenham en ég er ekki viss um að þessi félög hafi áhuga á 33 ára gömlum Effenberg. Það er frekar að Chelsea reyni að setja sig í samband við hann.