Magnús Már Lúðvíksson og Egill Atlason hafa skrifað undir þriggja ára samning við KR. Þeir hafa verið nokkuð samstíga í frama sínum innan mfl. KR. Frumraun beggja með mfl. var í leik gegn Leikni í Deildabikarnum 18. mars 1999. Egill hóf leikinn en Magnús tók stöðu hans á 75. mínútu. Báðir skoruðu sín fyrstu mörk í leik gegn Reyni S. í Deildabikarnum 1999 og báðir léku sinn fyrsta Evrópuleik gegn Birkirkara á Möltu í fyrra. Egill hefur skorað sex mörk í 17 leikjum og Magnús fjögur í 20 leikjum.