Markahrókurinn mikli, Steingrímur Jóhannesson, er genginn til liðs við Fylki. Hann hafði áður fengið tilboð frá KR, Stjörnunni og Fylki, en ákvað að ganga til liðs við lærisveina Bjarna Jóhannssonar, fyrrum þjálfara síns hjá Eyjamönnum. Fyrsti leikur Fylkismanna í Símadeildinni verður á móti KR-ingum 15. maí í Árbænum.