Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

greatness
greatness Notandi frá fornöld 314 stig

Re: Heimsmynd Hitlers

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 6 mánuðum
En sigur eða tap Hitlers hafði ekki nein bein áhrif á hvaða svæði Japan hefði haft. Japan og Þýskaland skipulögðu ekki hernaðaraðgerðir sínar saman jafnvel þó að þeir hafi ákveðið hvaða áhrifasvæði þeir ættu að hafa. Eina raunverulega samstarfið var ein kafbátafylli af vörum frá Japan til Þýskalands eftir því sem ég best man. Það voru hersveitir Ho Chi Minh sem báru á endanum hersveitir Japana og frakka ofurliði í Víetnam og settu þá í fangelsi eða hröktu á brott og lýstu svo yfir...

Re: Heimsmynd Hitlers

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Má ég spyrja þá hvers vegna Víetnamstríðið hefði ekki orðið ef Hitler hefði unnið. Bandamenn háðu orrustur sínar við Atlandshafsmegin og Kyrrahafsmegin í raun alla tíð sjálfstætt, það voru meira að segja tveir sjálfsstæðir hersstjórnendur á Kyrrahafinu sjálfu! Ho Chi Minh efa ég að hefði verið eitthvað sáttari við nýlendustjórn Japana stjórnað af frönskum hermönnum ef Hitler hefði unnið. Það er rosalega erfitt að ímynda sér hvað hefði gerst og hvað hefði ekki gerst ef maður breytir einhverju...

Re: Bestu söngvarar gullaldarinnar?

í Gullöldin fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ja, það sækir enginn á bítlana í dag varðandi plötusölu. Þeir eru langhæstir enda hafa þeir sérstaka stöðu í heiminum langt umfram aðrar hljómsveitir og þori ég að veðja að þeir muni ávallt verða söluhæsta band allra tíma. Síðast þegar ég vissi voru þeir með yfir 450 milljónir seldar plötur í öllum heiminum á meðal Led Zeppelin voru með sirka 350, þannig að það er langur vegur þar á milli. Svo veit ég ekki heildarsölutölur með nýjustu útgáfuna sem þeir voru að gefa úr fyrr í sumar þannig að...

Re: Bestu söngvarar gullaldarinnar?

í Gullöldin fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Byrjuðu Queen ekki árið 1974 eða jafnvel fyrr. Þeir gáfu út Bohemian Rapsody árið 1975 minnir mig, gæti verið rangt. Þá voru t.d. Led Zeppelin á hátindi ferils síns, stærsta band í heiminum og þá á þeim tímabpuntki búnnir að selja fleiri plötur en bítlarnir í heiminum. Bítlarnir fóru fram úr þeim aftur seinna meir en einu sinni var Led Zeppelin söluhæðsta band allra tíma, núna verða eftirlifandi meðlimir að sætta sig við annað sætið:) Þeir voru allaveganna þá langt frá því að vera hættir....

Re: Kiss

í Rokk fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hrikalega ýkt grein þar sem hlutir sem þeir áorkuðu ekki eru eignaðir þeim á meðan hlutir sem þeir áorkuðu eru ekki nefndir. Annars varðandi lúkkið þá minnir mig að Alice Cooper og jafnvel David Bowie hefði byrjað að mála sig nokkuð á undan Kiss. Annars þá gæti það verið rangt hjá mér. Eitt annað varðandi live plötu þá gáfu held ég Deep Purple út live plötu 1972. Hún var samt ekki gefin út í Bandaríkjunum fyrr en seinna því það var talið á þeim tíma að þær myndu ekki seljast eins vel og þær...

Re: Mannskæðasta Loftárásin

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Það eru til svo margar mismunandi tölur um fjölda þeirra sem létu lífið í þessari loftárás en ef ég man rétt þá upplýstu borgaryfirvöld tuttugu árum eftir loftárásina að rétt tala látina hefði verið 25.000 látina. Í fyrstu var talan sögð vera svona mikil því það er hægt að nota slíkt í áróðurstilgangi eins og gefur að skilja. Þeir gáfu út þá skýringu á þeim tíma að borgin hefði verið full af flóttafólki sem er vafalaust satt. Hinsvegar þá veit ég ekki sannleikann en eins og ég sagði þá gáfu...

Re: Krossferðir

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 6 mánuðum
fín grein en mér finnst vanta svolítið upp á kaflann sem þú kallar um hvað snérust krossferðirnar. Það virðast allir ávallt gera ráð fyrir því að ekkert annað en trúarbrögð gætu hafa átt hlut að máli, jafnvel að það hafi verið það eina sem hafi ráðið förunum. Gætu kannski efnahagslegar afleiðingar verið að verki? Þetta eru spurningar sem þarf að svara og hafa margir reynt að gera það í gegnum tíðina. Ein þeirra sem mér fannst nokkuð athyglisverð og hef ég haft hana uppi hér á huga áður. Hún...

Re: Adolf Hitler

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 7 mánuðum
ja ég veit ekki, það er alltaf hægt að vera totrygginn og hafna öllu en finnst þér það líklegt að Bandamenn hafi gert samning við Hitler eða þá að þeir myndu standa við hann. Geturðu ímyndað þér hvernig almenningsálitið hefði farið með t.d. Truman hefði hann gert slíkan samning og staðið við hann! Það er að segja hefði komist upp um það sem mér finnst þó nokkuð líklegt þar sem maðurinn er með dauða tugi milljóna manna á samviskunni, eða var með það á samviskunni. Finnst þér það í sjálfu sér...

Re: Hornafjörður og seinni heimsstyrjöldin

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Fín grein og skemmtilegt sjónarhorn. Samt smá annmarkar. Það eru ekki allir á því að seinni heimsstyrjaldin hafi hafist árið 1939. Þetta hefur verið nefnt hér aftur en það má samt alltaf leiðrétta eða kannski benda á mismunandi viðhorf. Greatness.

Re: D-Day ?

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Mér finnst það samt sem áður svolítið merkilegt því þú talar um að vera vitur eftir á að næstum því allir helstu hershöfðingjar Bandaríkjamanna, þar á meðal Eisenhower voru á móti því að varpa kjarnorkusprengjunni á Hiroshima og Nagasaki. Eisenhower sagði meira að segja að það hafi verið algjörlega óþarfi að varpa þessum andskota á þá. Það var vandkvæðum fundið að finna menn innan hersins sem voru fylgjandi því að varpa kjarnorkusprengjunni, forsetinn virðist hafa fylgt hvað helst eftir...

Re: Gullöldin og djöfullinn

í Gullöldin fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég neita því ekki að hafa heyrt fleygu orðin sjálfur To my sweet satan í einum file sem var settur á netið á sínum tíma. Hinsvegar þá hef ég lesið umfjöllum um sama efni frá Eddie Kramer sem sá um upptökuna á Hedley Grange þar sem umrædd lag var tekið upp og hann þrætir algjörlega fyrir það að einhver skilaboð hafi verið tekin upp afturbak. Hann bendir á að á þeim tíma hafi með umræddum tækjabúnaði sem hann hafði undir höndum eiginlega ekki verið hægt að koma slíkum skilaboðum að, eða að það...

Re: Gullöldin og djöfullinn

í Gullöldin fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já, ef ég man rétt þá var það hann, en eins og ég sagði áður þá er nafnið algjörlega dottið úr hausnum en mig minnir samt endilega að það hafi verið nafnið fyrst þú nefnir það:) Þakka þér kærlega fyrir það:) greatness.

Re: Gullöldin og djöfullinn

í Gullöldin fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Tengingin milli tónlistarmanna og djöfulsins hófst ekki á Robert Johnsons. Fyrstu heimildir sem ég þekki um tengingu milli tónlistarmanns og djöfuls var á milli frægs sólófiðluleikara í Evrópu. Hann ferðaðist á milli í Evrópu og spilaði einleik á sviði. Hann öðlaðist mikla frægð og varð einnig alræmdur fyrir furðulega kynferðislega hegðun. Konurnar voru víst alveg yfir sig hrifnar af manninum. Fólk sagðist oft hafa séð djöfla á sviðinu með honum að spila á fiðluna fyrir hann, einnig er fræg...

Re: Before Led Zeppelin -Jimmy Page

í Gullöldin fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Fín grein en það vantar samt smá inn í. Þegar Jimmy Page hóf að spila með Neil Christian and the crusaders fór lífernið að hafa áhrif á heilsu hans. Hann þoldi illa við ferðalögin og þá sýndarmennsku sem bandið fór á fram við hann. Á endanum brotnaði hann niður líkamlega og skráði sig inn á heilsuhæli til að jafna sig. Þess vegna hóf hann aftur störf við sessionvinnu í stað þessa að leita sér strax að nýju bandi. Jimmy Page átti það líka oft til að fara í langar gönguferðir með gítarinn,...

Re: Led Zeppelin

í Gullöldin fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er nú ekki alveg rétt að tónlistarelítan hafi ekki viljað taka viðtal við þá á fyrstu árunum sem varð ástæða þess að Led Zeppelin hunsuðu tónlistarpressuna. Ástæðan fyrir því að Led Zeppelin hunsuðu tónlistarelítuna var sú að í fyrstu töldu þeir sig vera misskilda, sérstaklega af bresku tónlistarpressunni. greatness.

Re: Hvernig dæmir maður gáfur ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þó svo að það væri kannski ákveðin skemmtun að horfa á keppn í mannkynssögu þá held ég að slík keppni myndi aldrei ganga upp. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að einstaklingar oft á tíðum líta ekki söguna sömu augum. Það er hægt að túlka söguna á margan hátt en það er eitthvað sem er mun erfiðara með stærðfræðinni, allaveganna þekktri stærðfræði. Þar er svarið annaðhvort rétt eða rangt eins og þú túlkar það. Í sagnfræði þá á hugtakið rétt og rangt einungis við kannski spurningar eins og...

Re: Talandi um kommúnisma

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
EF þú átt við þann kommúnisma sem ég held að þú eigir við þá er nú ekki alveg víst að hann gangi upp, hvorki á pappír né í alvöru. Í fyrstu þá er það svolítið skrýtið að segja að kommúnismi gangi upp á pappír fyrst hann gengur ekki upp í alvörunni. Þegar maður skrifar niður einhverjar kenningar eða hugmyndafræði á pappír hlýtur maðurinn að reyna að taka tillit til hvers gerðar manneskjan er og sníða hugmyndafræðina að því. Annars er það gölluð hugmyndafræði. Er það ekki? Annars vil ég benda...

Re: The Black Crowes

í Rokk fyrir 23 árum
Ástæðan fyrir því að það voru engin Black Crowes lög á diskinum Jimmy Page and the Black Crowes live at the Greek er vegna þess að útgáfufyrirtækið sem Black Crowes voru með samninga við þá vildi ekki gefa leyfi fyrir því. Þeir tóku samt sem áður á túrnum fjölda black crowes laga í setti sínu en urðu að breyta settinu til þess að geta tekið upp live plötu. Það ber líka að nefna að eftir því sem ég best veit þá eru black crowes hættir að spila saman og hefur Christ Robinson ítrekað undanfarið...

Re: astekar svöl þjóð

í Sagnfræði fyrir 23 árum
Í þeim tilvikum þegar Inkar börðust en þá var það seinna meir. Upphaflega þá féllust þeim yfirleitt hendur gagnvart Pizzaro. Athahualpa heyrði um komu hvítra manna á hestum með furðuleg vopn. Öll villtu dýrin í hofunum róuðust niður þegar þau voru í viðurvist þeirra. Þetta hljómaði eins og að einherskonar guðir væru komnir. Þetta hefur líklegast hljómað eins og að guðirnir ætluðu að blessa hann og valdatíð hans enda var hann nýbúinn að taka við krúnunni. Hann réð því umsvifalaust til móts...

Re: astekar svöl þjóð

í Sagnfræði fyrir 23 árum
ja, það dóu ekki langflestir úr sjúkdómum heldur dóu einnig þorri verkfærra manna í borgarastyrjöldinni sem Athahualpa (stafa ég þetta rétt) hafði sigrað gegn bróður sínum. Þar hafði t.d. verið barist í gríðarlega stórri orrustu þar sem ýmsar heimildir telja að næstum hundrað þúsund Inkar hafi barist en um það er deilt sem og svo margt annað. Þessi borgarstyrjöld hafði endað rétt áður en Pizarro steig á land eða í þann mund sem hann steig á land með um 160 hermenn. Það eru í raun nokkrar...

Re: Könnunin - Orrustan um Somme

í Sagnfræði fyrir 23 árum
Ég hélt að árásin við somme hefði þegar verið ákveðin áður en Þjóðverjar hófu árásir sínar við Verdun. Hinsvegar þá hafði verið dregið verulega úr þeim fjölda hersveita sem áttu að taka þátt í árásina við Somme til þess að þess að koma í veg fyrir að Þjóðverjum tækist að ná takmarki sínu við Verdun. Frakkar gátu alls ekki hugsað sér að tapa Verdun. greatness.

Re: Byltingin á Kúbu og skæruliðinn ErnestoCheGuevara

í Sagnfræði fyrir 23 árum
Líklegast besta grein sem ég hef lesið hér á sagnfræðihorni huga.is. Hún kom mér þægilega á óvart og var ég frekar hissa á sjálfum mér fyrir að nenna að lesa hana því ég hef örugglega þegar lesið um fjórar greinar um Kúbu og Che Guevara sem er að mínu mati of mikið. Þín grein bar hinsvegar af. Annars þá vil ég spyrja að einu, telur þú greinarhöfundur og líklegast þeir sem lesa þetta svar að Che Guevara sjálfur hafi kannski haft afgerandi þátt í þessari hugsanlega skyndilegri breytingu á...

Re: Kóreuskaginn

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það væri kannski mál að nefna hvers vegna friðarsamningarnir gengu ekki upp 1953 sem í kjölfarið skapaði það ástand sem er á Kóreuskaganum í dag. Annað, ég er ekki alveg viss en ég hélt að Bandaríkjamenn hefðu aldrei flutt heri sína algjörlega burt af Kóreuskaganum, þótt að Sovétmenn hefðu gert það. Þeir hafi einmitt verið hluti af eldlínunni frá upphafi og verið styrktir eins og þykja þurfti eftir því sem baráttan varð tvísýnari. Fín grein en það hefði mátt vera ítarlegri:) rock on. greatness.

Re: Saga Norður kóreu

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 1 mánuði
“Þá göbbuðu sovét menn Kínverja til að hjálpa Norður Kóreu í stríðinu og það gerðu þeir.” Ég verð nú að gera athugasemd við þessa línu. Kínverjar voru nú aldrei neitt hrifnir af því að Bandaríkjamenn hefðu her við landamæri þess og vöruðu stjórn Harry Truman við því að fara yfir 38 breiddargráðu eftir að Douglas McCarthur hafði hrakið Norður-Kóreska herinn aftur yfir landamærin. McCarthur var “haukur” og vildi ráða niðurlögum kommúnismans í Norður-Kóreu en fékk hinsvegar bara margtúlkanleg...

Re: Innrás á Iwo Jima

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 1 mánuði
Reyndar ekki alveg fölsuð. Það sem var gerðist var að könnunarsveit komst upp á tindinn og lét upp lítinn fána og ef ég man rétt tók mynd af því. Daginn eftir var ákveðið að fara upp með almennilegan fána og setja hann upp og fór þá náttúrulega ljósmyndari með (ætli hann hafi ekki verið frá pins and stripes, bandaríska herblaðinu og fréttamannarliðinu). Þeir skipulögðu svo þessa mynd. Afsaka ef það er eitthvað vitlaust í þessu, ég skrifa nú flest eftir minni hér:) rock on. greatness.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok