Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

greatness
greatness Notandi frá fornöld 314 stig

Re: Bíómyndir

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Var að horfa á A Bridge too Far og var ekki nægilega ánægður með hana. Mér fannst hún vera langdreginn en ekki nóg með það ótrúlega sundurslitin og ójöfn. Dæmi um þetta er að snemma í myndinni eru sýndir tveir bandarískir hermenn tala saman í tjaldi fyrir árásina. Þar lofar sá eldri þeim yngri að hann muni ekki deyja. Síðar í myndinni þá sést sá eldri allt í einu keyra á jeppa og er greinilega að flýta sér. Eftir eitthvað umstang finnur hann líkama hermannsins sem var skilinn eftir því hann...

Re: Hernám Íslands

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Já, nú man ég eftir hinu tilvikinu sem þú nefnir. Var alveg búinn að gleyma því. Það er að segja maðurinn sem var skotinn til bana fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu. Þakka þér kærlega fyrir þetta:) Greatness.

Re: ww2

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Söguskilningur Evrópu skiptir líklegast minna máli fyrir Kínverja en það gerir fyrir Evrópubúa. Ég tel að Seinni Heimsstyrjöldin sé samansafn margra smærri átaka ef svo má að orði komast sem hafi smátt og smátt orðið að heimsstyrjöld. Það eru til sagnfræðingar sem halda því fram að Seinni Heimsstyrjöldin hafi ekki orðið í raun heimsstyrjöld fyrr en Bandaríkin hafi orðið þátttakendur og miða þeir þá annaðhvort við árásina á Pearl Harbor eða stríðsyfirlýsingu Hitlers á þeim. Ég orðaði fyrsta...

Re: Hernám Íslands

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þakka þér fyrir þetta. Það er oft þegar maður er að rifja eitthvað gamalt sem maður annaðhvort heyrði eða las einhvers staðar að sagan ruglast og maður fer að hafa eftir einhverja algjöra þvælu. Greatness.

Re: Hernám Íslands

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Sæll Mal3 Þú virðist vera manna fróðastur hér um hérnámsárin og sögu Íslands í gegnum seinni heimsstyrjöldina. Veit ekki hvort eftirfarandi er satt, var búinn að gleyma þessu sjálfur þar til ég sá þessa grein og orðaskiptin hér. Ég las eða heyrði einhvers staðar mjög ungur að um til til tólf ára drengur var skotinn til bana af hermönnum fyrir annaðhvort að setjast upp í herjeppa eða keyra herjeppa. Í sjálfu sér er það fáranlegt af hermönnum að skjóta svona ungan dreng fyrir að leika sér en...

Re: ww2

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ja, þó að margir sagnfræðingar eru ósammála um upptök stríðsins þá hef ég aldrei lesið neins staðar þá skoðun að stríði hafi staðið lengur. Bandaríkjamenn tóku yfirráð yfir japönsku eyjunum eftir uppgjöf Japana. Douglas McCarthur stjórnaði Japan sem nokkurs konar einræðisherra, hann mótaði framtíðarstjórmálastefnu þjóðarinnar að líkan því sem Bandaríkjamenn töldu æskilegt. Seinna meir eða um árið 1948 þegar það var orðið ljóst að Kína yrði Kommúnískt var ákveðið að reyna að skapa sterkan...

Re: Þess vegna töpuðu þjóðverjar seinni heimstyrjöldin

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Reyndar er önnur skoðun sem er algengari meðal sagnfræðinga en sú sem ég bauð áður upp á. Hún er að Hitler hafi í rauninni ekki áttað sig á umfangi sigurins. Hann hafi virkilega ekki trúað því að sigurinn hefði getað verið svona fljótunninn og því stöðvað herdeildir sínar sem í rauninni gerði breska hernum kleift að sleppa yfir Ermasundið. Semsagt hann hafi ekki stöðvað herdeildir sínar til að leyfa breskar hernum að sleppa, heldur hafi það verið mistök vegna þess að hann hefði orðið smeykur...

Re: ww2

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Enn og aftur þarf ég að benda á þetta. Það er ekki hægt að segja að seinni heimsstyrjöldin hafi hafist þennan dag á þessu ári. Það eru ekki allir sammála um það að seinni heimsstyrjöldin hafi hafist þá og ennfremur hver ákvað það að það hafi formlega hafist þá? Evrópubúar miða oftast við innrásina í Pólland sem upphaf seinni heimsstyrjaldarinnar og eru þá sagnfræðingar oft í þeim hópi en þeir gleyma því að önnur átök voru þegar hafin áður en þessi innrás átti sér stað og önnur lönd voru ekki...

Re: Þess vegna töpuðu þjóðverjar seinni heimstyrjöldin

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ja, við erum þá altént ekki sammála og getum verið sammála um það:) Greatness.

Re: Þess vegna töpuðu þjóðverjar seinni heimstyrjöldin

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Afsakið en mér fannst það svolítið skrýtið að lesa: “Og leyft nánast öllum breska hernum að flýja heim.” Um þetta hefur verið rifist nokkuð meðal sagnfræðinga, enda er það umdeild. Þú mátt náttúrulega vera þinnar skoðunar en mér hefur ávallt fundist þetta vera nokkur móðgun við þá Breta og kannski helst Frakka sem fórnuðu lífi sínu svo að sem flestir Bretar í fyrstu og svo Frakkar og Bretar eftir að skipunin um að jafnmargir Bretar og Frakkar ættu að sigla í skipunum kæmust burt. Sumir...

Re: Þess vegna töpuðu þjóðverjar seinni heimstyrjöldin

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Afsakið en var þessu beint gegn mér, ekki viss. Greatness.

Re: US vs UK

í Gullöldin fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Smá vitleysa. Eric Clapton er breskur. Greatness.

Re: Þess vegna töpuðu þjóðverjar seinni heimstyrjöldin

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Efa það stórlega. Þá hefði Rússaland fengið að stunda uppbyggingu sína til innrásar í Þýskaland í friði í að minnsta kosti eitt annað ár. Það er nokkuð ljóst að hann hafði hugsað sér það. Hitler varð að hefja innrás sína sem fyrst til að tryggja það að hann hefði frumkvæðið. Stríð var óumflýjanlegt og það varð að vera eins fljótlegt og mögulegt var. Það sem hann gerði kannski vitlaust eins og aðrir orða hér er að þótt að hann hafi þurft á fljótlegum sigri að halda þá er það firra að hafa...

Re: Þess vegna töpuðu þjóðverjar seinni heimstyrjöldin

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Sú töf hefði hvort eð er verið að raunveruleika því rigningar hófust mjög snemma um sumarið 1941 og það í rauninni hefði í sjálfu sér tafið innrásaráætlanir Hitlers. Skriðdrekar hans hefðu ekki getað keyrt áfram fyrr en seint í Júní. Ennfremur þá voru einungis 15 herdeildir færðar frá austurvígstöðvunum til að sigra Grikkland og Júgóslavíu og berja niður mótspyrnu frá Júgóslavíu. Það er varla hægt að segja að 15 herdeildir af um 150 herdeildum hafi haft það mikil áhrif. Annað sem menn hafa...

Re: Mannfall helztu ríkja í síðari heimsstyrjöldinni

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það liggur ekki eins frammi fyrir Kínverjum t.d. Eiga þeir að líta á upptök seinni heimsstyrjaldarinnar sem árið 1939 vegna þess að Evrópubúar gera það. Eða hvað með Rússa eða Bandaríkjamenn sem hófu ekki beina þátttöku í stríðsrekstri fyrr en eftir 1939. Það er voðalega einfalt að segja 1939 því það liggur augljóst fyrir okkur því við erum Evrópubúar en það liggur ekki eins augljóst fyrir öllum. Ennfremur þá gat Hitler að mínu mati lítið annað gert en að gera innrás í Sovétríkin sálugu. Það...

Re: Mannfall helztu ríkja í síðari heimsstyrjöldinni

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Menn mega ekki gleyma því að það eru ekki allir þeirrar skoðunar að seinni heimsstyrjöldin hafi byrjað árið 1939. Greatness.

Re: Erwin Rommel fyrsti hluti 1891-1933

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Getur verið að greinin sé héðan: http://www.achtungpanzer.com/gen1.htm Smá beinþýðing. Greatness.

Re: Led Zepplin

í Gullöldin fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ekkert mál:) Vonandi lærirðu bara eitthvað af þessu. Annars skaltu halda ótrauður áfram. Það getur alltaf batnað:) Rock on. Greatness.

Re: Led Zepplin

í Gullöldin fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þú verður að skoða heimildir þínar betur ef þú ætlar að skrifa grein upp úr þeim. Eftirfarandi eru villur: Jimmy Page kynntist ekki Eric Clapton í The Yardbirds, sá sem var gítarleikari í the yardbirds þegar Page varð meðlimir var Jeff Beck sem er gamall æskuvinur Page. Jeff Beck tók einmitt við af Eric Clapton. Page kynntist hinsvegar Clapton sem session gítarleikari þar sem spiluðu saman á nokkrum lögum. The yardbirds hættu ekki 1966 heldur 1968. Það var 1966 sem Jeff Beck var rekinn úr...

Re: Víetnamstríðið

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það má kannski rekja ástæðuna fyrir því að flugher Þjóðverja var borinn ofliði á endanum að hann var í fyrstu hannaður til þess að styðja leifturárásirnar. Svo má ekki gleyma því að Hitler rak heimsstyrjöld í fjögur ár með efnahagsmódel sem er byggt á friðartímum, semsagt almenningur heima fyrir í Þýskalandi þurfti ekki að líða eins mikinn skort og t.d. almenningur í Bretlandi. Ef ég man rétt þá minnkaði Þýskaland jafnvel hernaðarframleiðslu sína fyrir innrásina í Rússland. Það er í sjálfu...

Re: Víetnamstríðið

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Fín grein en þarf að stikla á sumu. Bandaríkjamenn hófu afskipti af Víetnam og hófu stuðning við Suður-Víetnamstjórnina fyrir árið 1960. Bandarískir hermenn fóru inn í Suður-Víetnam sem nokkurs konar friðargæsluliðar og urðu síðan kallaðir hernaðarráðgjafar fyrir Suður-Víetnamska herinn strax árið 1954 eftir að landinu hafði verið skipt við 17. breiddargráðu. Þegar landinu var skipt við 17.Breiddargráðu árið 1954 var ákveðið að það ættu að vera frjálsar kosningar tveimur árum seinna. Þessar...

Re: Led Zeppelin

í Gullöldin fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það er langt síðan þeir spiluðu allir þrír saman á sviði en það var árið 1995. Þá voru Page og Plant aftur byrjaðir að spila saman og höfðu ákveðið það að láta hann Jonesy ekki vita af því. Forsaga málsins var reyndar sú að Page hafði samband við Jonesy árið 1994 til að athuga hvort að hann væri til að spila saman aftur og hann sagðist hafa áhuga. Þá sagðist Page ætla að bera það undir Plant en slík áform höfðu nefnilega oftast strandað á honum. Plant var til en hann vildi ekki Jonesy með...

Re: Led Zeppelin

í Gullöldin fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Úps Sem betur fer vona ég að flestir trúi ekki svona blöðum fyrir því að segja sannleikann. Það sem gerðist var að John Bonham var sóttur á heimilið sitt af sérstökum aðstoðarmanni, man ekki nafnið en man að það var mjög langt:) Hann stoppaði við á krá og eftir því sem þessi aðstoðarmaður segir þá drakk hann nokkura tugi skot þetta kvöld, sagan hefur jafnvel fleytt fram á 40 skot hjá sumum heimildum. Þeir komu svo heim til Page þar sem var spilað nokkuð fram eftir, það var verið að æfa sig...

Re: Nýtt Víetnam ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það er mjög margt ólíkt í þessum tveimur átökum og í rauninni er miklu meira ólíkt en það er líkt með þeim. Í víetnam stuðluðu Bandaríkjamenn í fyrstu að því að Víetnam fengi ekki að ákvarða sína eigin forystu lýðræðislega. Það átti að gerast árið 1956 eins og þing Sameinuðu þjóðanna hafði lagt til að yrði gert þegar landinu var upphaflega skipt við 17 breiddargráðu 1954 í friðarsamningunum eftir tap Frakka í Víetnam. Eiseinhower sjálfur sem var þáverandi forseti Bandaríkjanna skrifaði í...

Re: Þýskaland / Hvað ef?!

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ja, eiginlega þar til Bandaríkjamenn ákváðu að fara eftir hugmyndum Breta um að nota skipalestir því Bandaríkjamenn voru fyrst á þeirri skoðun að betra væri að dreifa flotanum og láta skip sigla ein eða í mjög fámennum skipalestum. Þetta jók einungis tap skipalesta þar til Bandaríkjamenn tóku að hafa stórar skipalestir og láta tundurspilla fylgja með. Annars þá er það annað að hafa kafbáta staðsetta á Atlantshafi og hafa semsagt einhvers konar völd á því og að senda árásarflota yfir...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok