Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

greatness
greatness Notandi frá fornöld 314 stig

Re: Góð moment

í Gullöldin fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ef ég man rétt þá var lagið upphaflega aldrei um Ísland og þegar þeir voru sjálfir spurðir að því þá sagði einn þeirra (aftur þá man ég ekki alveg hver það var af þeim) að þeir höfðu byrjað að semja lagið áður en þeir komu til Íslands. Greatness.

Re: 10 áhrifamestu hljómsveitir sögunnar.

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Reyndar þá hafði Jim Morrison engin áhrif á Jimmy Page né nokkurn í Led Zeppelin, ég er nokkuð viss um það. Þeir báru virðingu fyrir The Doors og tónlist þeirra en áhrifin eru nánast engin. Það mætti kannski færa einhver rök fyrir því að Jim Morrison hefði haft áhrif á Robert Plant en ég held að hann myndi sjálfur neita því, allaveganna tónlistarlega séð. John Bonham hataði reyndar The Doors. Honum fannst þeir alveg hundleiðinlegir og bar enga virðingu fyrir þeim. Ég veit nú ekki hvort að...

Re: 10 áhrifamestu hljómsveitir sögunnar.

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Það er mjög erfitt að gera svona lista en ef ég ætti að gera lista yfir áhrifamestu tónlistarmenn sögunnar. Þegar það er verið að tala um áhrifamestu tónlistarmenn sögunnar þá er jafnframt oftast verið að tala um áhrifamestu tónlistarmenn síðustu aldar. Tónskáldin frægu eru t.d. oftast ekki á svona listum þó svo að áhrif þeirra eru örugglega nægilega mikil til að þeir eigi erindi á svona lista. Ég ætla að birta hérna lista og mun reyna að birta hann í réttri áhrifa röð. Það er að segja að sá...

Re: Led Zeppelin II

í Gullöldin fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Bara til þess að fræða ykkur aðeins um John Paul Jones þá var fyrsta hljóðfærið sem hann lærði á Orgel. Hann var orðinn fínn organisti þegar hann heillaðist af bassanum og tók hann upp held ég um 14 ára aldurinn en það gæti verið rangt hjá mér. Faðir hans var tónlistarmaður og hann réð John Paul frá því að spila á bassa. Hann vildi frekar að John héldi áfram á orgelinu. Það kom reyndar á daginn árið 1974 að John Paul hætti næstum því í Led Zeppelin til þess að taka að sér stöðu sem...

Re: Pink Floyd – Wish You Were Here

í Gullöldin fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Sælir. Ég hef sjálfur mikið dálæti á þessari plötu og hef ávallt haldið að platan fjallaði einmitt um Syd Barret að einhverju leyti og um aðra tónlistarmenn þegar þeir koma inn í bransann og nálgast viðskiptakjarnan. Have a cigar hef ég einmitt ávallt haldið að væri ávarp viðskiptajöfursins sem er að reyna að fá þá til að skrifa undir samning hjá sér. Leitið að textanum og skoðið það aðeins. Syd Barrett er einmitt brjálaði demanturinn. Maður sem hafði óneitanlega mikla hæfileika og átti...

Re: Pink Floyd – Wish You Were Here

í Gullöldin fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Sælir. Ég hef sjálfur mikið dálæti á þessari plötu og hef ávallt haldið að platan fjallaði einmitt um Syd Barret að einhverju leyti og um aðra tónlistarmenn þegar þeir koma inn í bransann og nálgast viðskiptakjarnan. Have a cigar hef ég einmitt ávallt haldið að væri ávarp viðskiptajöfursins sem er að reyna að fá þá til að skrifa undir samning hjá sér. Leitið að textanum og skoðið það aðeins. Syd Barrett er einmitt brjálaði demanturinn. Maður sem hafði óneitanlega mikla hæfileika og átti...

Re: Smá hjálp með íslensku battlefield Vietnam servera

í Battlefield fyrir 21 árum, 9 mánuðum
þakka fyrir svarið, ætla að kíkja á þetta forrit, the all seeing eye. Rock on. Greatness.

Re: Saga Acdc

í Rokk fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Hér er skemmtileg saga af Led Zeppelin þegar þeir voru að túra um Ástralíu 1972. Jimmy Page og Robert Plant fara út á lífið eitt kvöldið á milli tónleika og ramba inn á einhvern klúbb eða krá. Þar er band að spila og eftir að hafa hlustað á þá spila í smá tíma líst þeim helvíti vel á bandið, tónlistina og spilamennsku þeirra. Þeir fara því ásamt Richard Cole sem var road manager fyrir Led Zeppelin til hliðar við sviðið og biðja einn af róturunum þarna um að spyrja hljómsveitarmeðlimina hvort...

Re: Hitler og Þýskaland

í Sagnfræði fyrir 22 árum
Þakka þér fyrir að benda mér á þetta, er með fyrra bindið núna heima hjá mér. Hann er mjög ítarlegur af því sem ég er búinn að lesa hingað til en ég verð samt að játa að ég var orðinn frekar þreyttur á innganginum þar sem hann var að lýsa því í löngu máli á hvað hann væri að einblína í þessu riti sínu. Annars eini gagnrýnin sem ég hef á þessa bók núna er að hún er eiginlega of stór, það er erfitt að láta hana bara niður á borð og lesa hana, maður verður alltaf að halda niðri öðrum...

Re: Hitler og Þýskaland

í Sagnfræði fyrir 22 árum
Hvaða bók mælirðu þá með eftir Ian Kershaw, einhver sérstök bók eða bara ævisögu hans? Ég hef nefnilega áhuga á því að skoða sem flestar hliðar og söguskoðanir á þessu tímabili. Rock on. greatness.

Re: Hitler og Þýskaland

í Sagnfræði fyrir 22 árum
Sælir Obsidian. Takk fyrir svarið, var farinn að halda að ég fengi ekkert svar. Gefðu mér samt smá tíma til að leita upp bók Kershaw og lesa hana. Ég hefði samt haft gaman af því að lesa hitt svarið en ég þekki þetta vandamál. Það hafa þónokkur svör hjá mér horfið furðulega á þessum síðum. Þess vegna hef ég tekið það upp hjá mér þegar ég sé fram á það að þurfa að skrifa langt svar að opna bara word og skrifa það þar og síðan að copy/pasta það hingað inn. Annars mjög gott svar og ég ætla að...

Re: Hitler og Þýskaland

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 1 mánuði
Sælir Obsidian. Það kemur mér á óvart að þú skulir vera þeirrar skoðunar en það er kannski ekki skrítið því ekki þurfa allir að vera sömu skoðunar þegar kemur að sagnfræðilegum efnum. Ég er ósammála þér ef þú ert að segja við mig að vilji hans Hitler hafi verið ástæðan fyrir upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar. Ég hef hingað til lesið mér nokkuð ítarlega til um þrjár meginskoðanir á upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar. Af þeim þremur hefur mér fundist einungis ein vera nægilega vel rannsökuð...

Re: Smá spurning

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég man ekki eftir því að það hafi verið neinir formlegir samningar en Rússar höfðu áhuga á því að móta og stjórna svæðinu og lýstu þeir sig því sem verndara allra slavnskra þjóða. Hversu langt vilji þeirra gekk í þá áttina er kannski umdeilanlegt en þeir voru allaveganna ekki tilbúnnir til þess að leyfa öðru ríki (Austurríki/Ungverjalandi) að hertaka svæðið. Serbar höfðu ekki áhuga á því að fara í stríð gegn Austurríki/Ungverjalandi og reyndu hvað sem þeir gátu til að koma í veg fyrir það...

Re: Hitler og Þýskaland

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 1 mánuði
Var ég að hvítþvo Hitler? Hann var sekur um margt það sem hann hefur verið sakaður um en hann var sakaður um að hafa stofnað til seinni heimsstyrjaldarinnar að því er virðist einvörðungu sjálfur. Það er að segja að hans eini vilji hafi verið ástæðan fyrir upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar. Er það ekki ósköp einfalt sjónarmið? Varðandi helförina þá hef ég aldrei sagt neitt um sannleiksgildi hennar hingað til og er þeirrar skoðunar að hún hafi verið raunveruleg. Greatness.

Re: Hitler og Þýskaland

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 1 mánuði
ég afsaka þetta ónóga svar, var ekki búinn með það og var reyndar búinn að ákveða að senda það ekki inn þar sem ég nennti ekki að klára það. Greatness.

Re: Hitler og Þýskaland

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 1 mánuði
Hitler endurbyggði ekki Þýskaland upp úr rústum fyrri heimstyrjaldarinnar, það liðu sirka 15 ár frá lokum fyrri heimsstyrjaldar þar til hann tók við völdum. Var þýskaland enn í rústum þegar Hitler tók við völdum? Ég hef aldrei lesið það að Hitler hafi fundið upp á hraðbrautunum, hvenær var það? Það var ekki Hitler sem kom fram með hagfræðimódelið sem gerði Þýskalandi kleift að viðhalda mjög lágu atvinnuleysi sem var ein af ástæðum þess að honum tókst að halda völdum og styrkja þau eftir að...

Re: Hitler og Þýskaland

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 1 mánuði
Hitler endurbyggði ekki Þýskaland upp úr rústum fyrri heimstyrjaldarinnar, það liðu sirka 15 ár frá lokum fyrri heimsstyrjaldar þar til hann tók við völdum. Var þýskaland enn í rústum þegar Hitler tók við völdum? Ég hef aldrei lesið það að Hitler hafi fundið upp á hraðbrautunum, hvenær var það? Það var ekki Hitler sem kom fram með hagfræðimódelið sem gerði Þýskalandi kleift að viðhalda mjög lágu atvinnuleysi sem var ein af ástæðum þess að honum tókst að halda völdum og styrkja þau eftir að...

Re: Hitler og Þýskaland

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Alveg hrikalega léleg grein og fjallar nánast ekkert um það hvernig Hitler komst til valda og hvernig honum tókst að treysta völdin sín. Þetta getur einungis verið metið sem upplestur á atburðum og þeim árum og kannski mánuðum sem þeir fóru fram. Sem slíkt er þetta ekki einu sinni boðlegt. Lélegt og engan veginn þess vert að vera samþykkt hingað inn. Verst að maður hefur sjálfur bara ekki tíma eins og er að senda inn grein um þetta efni en aldrei að vita í sumarfríinu:) Rock on. Greatness.

Re: Gítarsnillingurinn Eric Clapton

í Gullöldin fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Sælir. Geta það þá ekki verið þau lög sem ég var að tala um. Þeir hittust einhvers staðar til að spila nokkur acoustic lög sem áttu aldrei að fara á plötu en enduðu þar engu að síðu? rock on. greatness.

Re: Gítarsnillingurinn Eric Clapton

í Gullöldin fyrir 22 árum, 3 mánuðum
ah, það eina sem hann tók upp með Jimmy Page sem ég man eftir voru einhver örfá acoustic lög sem átti aldrei að gefa út en enduðu einhvers staðar á plötu, það voru Jimmy Page, Jeff Beck og Eric Clapton. Eric Clapton hætti og svo tók Jeff Beck við. Eric Clapton mætti reyndar einhvern tímann til að spila upp á sviði með Jeff Beck sem tveir gítarleikarar (minnir það allaveganna). Það er reyndar ekki endanlega staðfest en svo segir sagan allaveganna. Jimmy Page hefur þó spilað upp á sviði með...

Re: Concert for group and orchestra

í Gullöldin fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þetta er víst til á Dvd og diskum. Persónulega þá er ég mjög hrifinn af movement 1 en mér finnst movement 2 og 3 ekki vera nægilega vel heilsteypt og þó mér finnist söngvarinn góður þá er ég ekki hrifinn af textanum og uppsetningu tónlistarinnar þar. Ekki nægilega heilsteypt verk en hefur samt sína kosti. Rock on. Greatness.

Re: Led Zepplin

í Gullöldin fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Því miður félagi þetta er rangt hjá þér. Farðu bara á official síðu Led Zeppelin. Urlið hennar er: Led-Zeppelin.com Svo þarftu ekkert að svara mér aftur til að biðjast afsökunar eða vera að leiðrétta þig því ég er nú þegar búinn að leiðrétta þig tvisvar sinnum, jafnvel þó að þú þrjóskist við. Hættu bara yfirhöfuð að svara mér, það væri fínt, þá neyðist ég ekki til þess að leiðrétta vitleysuna í þér. Annars þá ætla ég ekki að svara þér aftur jafnvel þó að þú þrjóskist enn við. Greatness.

Re: Led Zepplin

í Gullöldin fyrir 22 árum, 3 mánuðum
ööööö, nei, það er rangt. Greatness.

Re: BNA frá lokum WWII til dagsins í dag

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Fólk verður að passa sig á því að skoða heimildir sínar betur áður en þær eru skrifaðar upp úr heimildarmynd. Sérstaklega heimildarmynd sem hefur verið undir frekar sterkri orrahríð fræðimanna vegna ósannsögli og hreinlega fyrir að skálda staðreyndir og raða saman brotum til að skapa ný sönnunargögn. Ég ætla ekki að fjalla um þessar ásakanir þar sem ég á eftir að mynda mér endanlega skoðun sjálfur. Hinsvegar vil ég benda á eftirfarandi varðandi þessa tímalínu. 1963: U.S. backs assassination...

Re: Seinni Heimstyrjöldin

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég veit ekki alveg af hverju þetta er hérna. Eiginlega hlægilegt að svona stykki skuli vera samþykkt sem grein hingað inn. Ég hef aldrei haft neitt gagnrýnt að segja um stjórnendur áhugamálsins en ef fleiri svona greinar verða samþykktar þá held ég að hér sé vandi á ferð. Greatness.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok