Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

greatness
greatness Notandi frá fornöld 314 stig

Re: Hryðjuverk framtíðarinnar

í Deiglan fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Sælir Thulesol. Þú segir að Ariel hafi hleypt kristnu Líbönunum inn en ekki getað vitað það fyrirfram að þeir myndu myrða fólkið. Ég hef samt eina spurningu þar sem ég hef verið þeirrar skoðunar að Ariel hafi verið valdurinn að morðunum beint í valdi þess að hann skapaði ástæðurnar. Hvers vegna hleypti Airel þeim inn í búðirnar. Ég hef sjálfur aldrei lesið viðtal við Sharon þar sem hann gerir grein fyrir þætti sínum og þar sem þú hefur að því er mér virðist séð slíkt viðtal þar sem þú vitnar...

Re: Hryðjuverk framtíðarinnar

í Deiglan fyrir 23 árum, 11 mánuðum
ÉG biðst nokkurar afsökunar á því að koma kannski svolítið seint inn í umræðuna og það sem ég mun skrifa er kannski þegar búið að láta í ljósi í einhverjum af þessum 176 skilaboðum sem var búið að senda inn þegar ég las þessa grein. Ég hef hinsvegar engan áhuga á því að lesa öll þessi svör og mun því skjóta. Þú spyrð hvers vegna við eigum ekki að refsa þjóðum fyrir að stunda, styðja eða líta undan þegar það eru framin hryðjuverk. Þetta er fín spurning og líklegast þegar maður er kannski...

Re: Jeff Buckley minningartónleikar!

í Rokk fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Bara til að bæta við þetta þá verður bráðlega minningarþáttur um stutta ævi hans og tónlistarferil á annaðhvort BBC eða VH1. Man ekki hvort það var. Þar verður t.d. viðtal við Jimmy Page sem var mjög hrifinn af honum og fyrrverandi kærustu eða eiginkonu. Man það ekki heldur. Ástæðan fyrir minnisleysinu er að ég heyrði um gerð þáttarins fyrir nokkru. Hugsanlega ná einhverjir þessu í sjónvarpinu. greatness.

Re: Syd Barrett - Gítarleikari Pink Floyd

í Rokk fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Það sem ég man eftir varðandi þetta tímabil í sögu Pink Floyd var að Syd Barrett var farinn að verða það óstöðugur karakter að hann hafi í raun bara nokkurn veginn hrökklast frá bandinu. Syd og Gilmour voru vinir á þessum tímapunkti og herbergisfélagar á einhverjum fyrri árum. Waters þekkti til hans og hann var fenginn inn til þess að fylla upp í skarðið, þá var hinsvegar ekki víst hvort að það yrði endanlega þar sem það var mikið spurningamerk við Syd og hvað hann vildi gera. Við skulum...

Re: David Blaine

í Deiglan fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Það er reyndar góður punktur sem einn eða ein bendir hér á. Eru þetta virkilega töfrar, er hann virkilega töframaður. Er þetta ekki einungis áreynsla á líkama sem fleiri gætu reynt ef þeir æfðu sig fyrir það. Væri þá ekki hægt að kalla manninn sem gekk á dögunum yfir Niagara falls á línu töframann. Eftir því sem ég best veit þá gengur hann ekki undir heitinu töframaður í fjölmiðlum. Annars þá þekki ég ekki frekar til David Blaine, stundar hann einhverja töfra eða er það bara eitthvað í...

Re: TOMMY VANCE REKINN AF VH1 !!!!!!!!!!

í Rokk fyrir 24 árum
Það sem við þurfum hingað til lands er ameríska VH1 og MTV. Þar eru reglulega sérstakir þættir, niðurtalningar, listar yfir allt mögulegt sem gefur manni færi á að hlusta á allar gömlu góðu hljómsveitirnr sem og nýtt gott rokk. Það er allt of mikil eighties dýrkun á breska VH1. ÉG hefði ekkert á móti því að fá meira seventies í æð. Annars þá er ég mjög hryggur að heyra þessar fréttir, það var gaman að horfa á kauða á föstudagskvöldum þegar maður var ekki að skemmta sér. Rosalega svalur maður...

Re: Hryðjuverk...

í Deiglan fyrir 24 árum
já, ég skil furðu þína vel enda er ég svolítið hissa sjálfur. Kannski misskildi ég eitthvað en ég er samt viss um að hún hafi sagt “stórt svæði” ekki eitt hús. Annars þá breytir það náttúrulega ekki skoðunum mínum:) ÉG þarf samt að spyrja hana út í þetta. Leiðinlegt að geta ekki verið viss um hvort það sé verið að ýkja eða mismæla sig við mann af kennara. Þeir eru auðvitað ekki fullkomnir. greatness.

Re: Hryðjuverk...

í Deiglan fyrir 24 árum
Ég hef ekki farið þangað sjálfur, ég er einungis að fara eftir frásögn félagsfræðikennarans míns sem fór þangað. Það kemur mér virkilega á óvart ef hún er að ljúga að mér og mínum bekk eða að ýkja. Hún sagði altént að þetta væri stórt svæði en hvað hún á við því veit ég ekki. greatness.

Re: Um Kónginn og áhrif hans

í Sagnfræði fyrir 24 árum
Ég efa að þú munir hafa áhuga á Elvis ef Metallica er hljómsveit sem er einkennandi fyrir hvernig tónlist þú hlustar á. En áhrifin koma samt í einu formi fram þar en þau eru óbein. Elvis hafði mikil áhrif á Led Zeppelin og Led Zeppelin höfðu óneitanlega áhrif á Metallica. Elvis hafði einnig áhrif á Deep Purple og Deep Purple höfðu kannski meiri áhrif á Metallica þó ég þori ekki að alhæfa svo. Ef þú fílar Iron maiden þá sérðu hljómsveit sem var undir miklum áhrifum frá Deep Purple. Áhrifin ná...

Re: Hryðjuverk...

í Deiglan fyrir 24 árum
Ég skal játa það að Japanir stóðu bakvið mörg myrkraverk í seinni heimsstyrjöldinni. Hiklaust enda er aldrei neinn saklaus í styrjöld. Ég þekki sögu seinni heimsstyrjaldarinnar vel og man líka vel eftir umræðunni fyrir svona hálfu ári síðan þegar Japanir voru að gefa út sögubækur sem gerðu lítið úr hræðulegum verkum Japana í seinni heimsstyrjöldinni. Ég var kannski frekar fljótur á mér þegar ég skrifaði fyrri skilaboð mín en ég var virkilega reiður og hef líklega aldrei skrifað skilaboð á...

Re: Um Kónginn og áhrif hans

í Sagnfræði fyrir 24 árum
Þetta er góð spurning og eitthvað sem ég hef velt mikið fyrir mér varðandi t.d. tónlist í dag. Þegar Whitney Houston eða einhver önnur söngkona sigrar einhver verðlaun fyrir lag þá finnst mér að sá sem samdi lagið eigi líka að fá einhver verðlaun. Ég man ekki eftir því að það hafi einhvern tímann gerst. Hinsvegar þá hafði Elvis Presley óneitanlega stór áhrif á tónlistarsöguna, sérstaklega nútíma tónlist. Þessi áhrif eru kannski ekki eins bein í dag eins og þau voru fyrir allt að 20 til 30...

Re: Hryðjuverk...

í Deiglan fyrir 24 árum
Þú mátt hafa þína skoðun en ég fylltist viðbjóði þegar ég las að þér finnist það fáranlegt að hafa kertafleytingu þarna. ÉG hef þegar sýnt fram á það með sannfærandi rökum í rökræðum við marga einstaklinga hér á huga að kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki voru stríðsglæpur og engan veginn fyrirgefanlegt né afsakanlegt. Þar með tilvísun í mögulega meira mannfall ef Bandaríkin hefðu þurft að gera innrás í landið. Þú mátt reyna að leita að því á huga því ég nenni ekki að skrifa það...

Re: Krossferðir

í Sagnfræði fyrir 24 árum
ja, ég hef nú aldrei heyrt þessa útskýringu. Ég hefði samt áhuga á því að heyra rökin frá þeirri manneskju. Manstu þau kannski? greatness.

Re: Krossferðir

í Sagnfræði fyrir 24 árum
Já menn gleyma nú oft að það voru nú ekki bara blessuðu trúarbrögðin sem voru kveikiþráðurinn að þessu stríði. Það vekur athygli mína að enginn hérna bendir á það að landrými hafi t.d. vantað undir lénskerfið í Evrópu og hefur það nú örugglega vegið eitthvað á myllu ákvörðunarinnar. Trúarbrögðin eru náttúrulega notuð sem afsökun en ekki endilega sem catalysti. En við höfum svo sem þegar rætt um það í eldri þræði. greatness.

Re: Rommel.....

í Sagnfræði fyrir 24 árum
Já, ég þekki vel sögu Afríkuhernaðarns í Seinni heimsstyrjöldina enda lesið hana vel. Því hef ég oft velt því fyrir mér hvers vegna sögubækur álíta þetta oft. greatness.

Re: Rommel.....

í Sagnfræði fyrir 24 árum
ja. ÉG sjálfur ber mikla virðingu fyrir hversu mikill hernaðarsnillingur Rommel var. Hinsvegar þá hef ég lesið það að margir sagnfræðingar telja að “veikindi” hans í Afríku hafi bara verið tylliástæða til að koma honum þaðan á meðan staða Þýskalands versnaði þar. Þetta var gert til að halda heiðri fræknasta herforingja Þýskalands. greatness.

Re: Fyrri heimsstyrjöldin

í Sagnfræði fyrir 24 árum
Það má fara mun ítarlegar ofan í aðdraganda stríðsins sem er nokkuð flókinn. Að minnsta kosti flóknari en aðdragandi seinni heimsstyrjaldarinnar. ÉG nenni ekki eins og er að skrifa greinargerð á því en þú getur fundið langa grein undir greatness held ég í korkinum. Það er að segja ef þú hefur áhuga á því að lesa það. Hinsvegar þá benda margir á borgarastyrjöldina sem eins konar fyrirboða fyrir stríð framtíðarinnar. Sumir hafa hérna verið að reifa um þróun herbúnaðar en mér finnst sem margir...

Re: Besta Koverlag ever?

í Rokk fyrir 24 árum, 1 mánuði
Má ég spyrja þig hvar þú last um að Jeff Buckley hefði tekið Kashmir á tónleikum. Ég er að fara að leita að bootlegum með honum og væri kannski fínt ef ég gæti lesið þessa grein. Takk. greatness.

Re: Áhrif stríðs á söguna

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 1 mánuði
Þarna gerði ég líka vitleysu sem ég var að benda á hjá öðrum greinarhöfundum. Maður má aldrei alhæfa varðandi söguna og játa ég fúslega á mig sökina. Ég þakka þér einnig fyrir að benda mér á þetta. Ég vissi þetta jú að vissu leyti en maður gleymir oft ýmsum hlutum um stundarsakir:) greatness.

Re: Áhrif stríðs á söguna

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 1 mánuði
Hér er ég nokkuð sammála þér. Ég efa það stórlega að nokkur stjórnmálamaður eða stríðsherra hafi virkilega verið umhugað um hvort að menningarheimurinn sem hann kom frá myndi vera ráðandi í framtíðinni. Ég tel að manneskjan sé of eiginkjörn til að það skipti verulegu máli þegar öllu er á botninn hvolft. Auður og ríkidæmi skiptir máli, ekki hvaða tungumál eða hvernig byggingarlist lýðurinn stundar. Hinsvegar þá þarf sögulegt mikilvægi þeirra ekki að vera minna fyrir vikið. Í mörgum tilvikum...

Re: Könnun um fund Ameríku

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 1 mánuði
Ég var ekki að leiða lýkur á því að þróun byggingartækni þessara þjóða hefði farið samfara enda er ég fróðari en það um sögu þessara tveggja menningaheima. Ennfremur þá geri ég mér grein fyrir muninum á menningareinkennum þessara tveggja menningaheima. Ég var einungis að benda á að kannski hefði menning í Suður-Ameríku orðið fyrir einhverjum áhrifum frá Egyptalandi, líklegast á óbeinan hátt. Eins og þú bendir á og ég veit reyndar fyrirfram þá voru pýramídarnir notaðir til mismunandi...

Re: Besta Koverlag ever?

í Rokk fyrir 24 árum, 1 mánuði
Ja, fyndnasta cover allra tíme verður að teljast í mínum augum The foo fighters að spila stairway to heaven. Fyrir þá sem hafa ekki heyrt það skulu kíkja á eftirfarandi síðu og sækja það, ekki stórt og ekki allt lagið, enda var þeim ókleift að spila það.:) Kannski ekki tribute en samt helvíti fyndið:)lol Led-zeppelin.org Farið í multimedia. svo assorted live songs og þar finniði að. Einnig cover frá Frank Zappa af stairway to heaven og fleira. greatness.

Re: Könnun um fund Ameríku

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 1 mánuði
Á ekki líka eftir að útskýra hvers vegna bæði indíánar í Suður-Ameríku og Egyptar byggðu pýramída. Indíánar í Suður-Ameríku byggðu einnig önnur grafhýsi, þó ekki eins og pýramída heldur kassalaga hús sem höfðu lítil göng sem náðu frá botni til lofts en enduðu ekki á opi. Samskonar göng og fyrirfinnast í pýramídunum á Giza sem eiga að beinast að stjörnunum í Orion sólkerfinu. Ég yrði ekki hissa á því að Indíánarnir byggðu sínar byggingu eftir einhverri fornri frummynd sem hafði fengist eftir...

Re: Áhrif stríðs á söguna

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 1 mánuði
snýst spurningin kannski ekki frekar um það hvort að innrásarþjóð geti virkilega bælt niður menningu annarar þjóðar. Það er að segja án þess að eyða þeirri þjóð. Ég man ekki í augnablikin eftir neinu slíku dæmi þar sem heilt menningarsamfélag er virkilega bælt niður. Liggur þá ekki ástæðan í því að í mörgum slíkum tilvikum þegar innrásarher gerir innrás þá er það þjóð frá nálægum svæðum og hefur menningarleg einkenni sem eru ekki mjög frábrugðin þeirri þjóð sem þeir eru að innlima. Auðvitað...

Re: Áhrif stríðs á söguna

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 1 mánuði
Ég hef náttúrulega aldrei haldið því fram að það eina sem skiptir máli varðandi söguna séu orustur eða stríðssaga. Sagan er ekki það einföld að maður geti rekið allar menningarlegar breytingar eða afleiðingar í sögunni til stríðsreksturs. En það er einfaldlega vitlaust að halda því fram að stríð skipti ekki einhverju máli. ÉG hef þegar komið með dæmi um stríðsrekstur sem hafði þau áhrif að heil heimsálfa varð fyrir víðtækum menningarlegum áhrifum frá gamla heiminum. Azrael hefur líka bent á...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok