Eftir að Baath flokkurinn komst til valda fyrst 1963 og svo loks aftur 1968 hélt velmegun áfram í Írak og undir stjórn hans varð landið að sjötta ríkasta landi heims. Ennfremur undir átaki sem Saddam sjálfur stjórnaði (sem hluti af Baath flokknum þá) jókst læsni í landinu, heilbrigðiskerfið varð betra og afkoma betri. Þetta breyttist vissulega eftir að Saddam komst til valda 1979 en ástæðan fyrir því var sú að Saddam var tilneyddur til að ráðast inn Í Íran. Íran hafði hvað eftir annað ógnað...
Jimmy Page var producer á öllum plötunum sem Led zeppelin gáfu út og gaf meðal annars mörgum frægum enginerum hugmyndir og fyrirmyndir sem þeir notuðu svo síðar á aðrar plötur og þáðu í kjölfarið lof fyrir. Kramer var þó ekki einn af þeim sem tók að sér lof fyrir eitthvað sem Page uppgötvaði. Page var sá sem átti hvað mestan þátt í því að koma trommuhljóðinu svona frá Bonham að undanskildum Bonham auðvitað sem átti náttúrulega þátt í því líka. Þetta var sameiginleg tilraunamennska þeirra...
Jimmy Page hefur verið ásakaður um margt í gegnum tíðina og hafa jafnvel verið upphugsaðar margar mismunandi atburðarrásir til þess eins að reyna að sanna að hann hafi verið á einhverjum stað til þess að sýna fram á stuld. Það sem er helst talað um er t.d. að hann hafi stolið stairway to heaven frá írskum þjóðlagasöngvara sem er argasta rugl þar sem ég hafði mikið fyrir því að leita upp akkúrat það sem sjálfskipaðir tónlistaralvitrar voru að tala um og gat með engu móti séð samanburðinn....
Það væri frekar erfitt fyrir Írak að senda kjarnorkusprengjur á Bandaríkin í augnablikinu einfaldlega vegna þess að þeir hafa ekki tækjabúnaðinn til þess. Þú verður að gera þér grein fyrir því að bandarískar og breskar herflugvélar fljúga yfir landið dag og nótt, ennfremur þá nota báðar þjóðir gervihnetti til að fylgjast með landinu. Ef Írakar væru langt komnir með langdrægar flaugar sem þeir þurfa til að að senda milli heimsálfa þá held ég að Bandaríkjamenn hefðu verið búnnir að sjá það....
Ég var nú að lesa um daginn á cnn.com að nýjar rannsóknir fyrrum skipstjóra sýna að Kínverjar hafi verið fyrstir til að sigla til Ameríku. Hann er að fara að gefa út bók fljótlega til að skýra frá niðurstöðum sínum. Það sem hann virðist helst nota til stuðnings eru upplýsingar um að keisari Kína hafi sent út flota til að setja upp viðskiptasambönd og færa ríki hans gull og græna skóga. Leifar af þessum flota eiga að hafa fundist í Bandaríkjunum sem og í Evrópu. Flestir sagnfræðingar virðast...
ÉG þori ekki að fara með það hvort að Peter Townsend fái virkilega eitthvað út úr því að skoða barnaklám en hann gerðist hinsvegar samt sem áður sekur um að brjóta lögin. Hann borgaði sig inn á klámsíðu sem sýnir barnaklám, það er glæpur í breskum lögum og er hægt að ákæra hann fyrir það en nýjustu fréttir herma að það muni ekki vera gert. Í rauninni samkvæmt þessum sömu lögum er hægt að ákæra einstakling fyrir það eina að hlaða inn á tölvuna sína barnaklámi ef það er viljandi gert....
Ætli minnið sé ekki að angra okkur báða, ég er ekki alveg viss á þessu sviði heldur. Eitt annað, af hverju eru diskarnir í kassa, taktu þá fram maður, hlustaðu á þá!!!!!!!!!!!!! Maður setur ekki svona í kassa:) Rock on. Daníel.
Reyndar var Jimmy Page ekki að safna meðlimum til að safna fyrir skuldum. Það lágu engar skuldir eftir hinir þrír meðlimir the yardbirds hættu störfum með hljómsveitinni. Það var hinsvegar einn túr sem hafði verið samið um sem átti að vera haldin um Skandinavíu. Ennfremur þá hafði Jimmy Page bara einfaldlega ekki áhuga á því að snúa aftur að session störfum og fannst það frekar leiðinlegt að hinir meðlimir the yardbirds skyldu hætta enda nuðaði hann í þeim til þess að telja þeim hughvarf. greatness.
The lemon song er að miklu leyti rip off af killing floor en það sem þarf að benda á er það sem Led Zeppelin setja inn í lagið. Bassasólóið er algjörlega smíð John Paul Jones sem og allt bassaspil held ég í laginu. Í rauninni þá minnir mig að það eina sem hægt sé að benda á sem stæling eða stuld sé textinn á laginu en ég gæti haft rangt fyrir mér þar. Varðandi Bring it on home þá er einungis byrjunin á laginu sem hljómar eins og gamall delta blues rip off en miðjukaflinn er algjörlega smíð...
Það er semsagt í lagi fyrir Bandaríkin og Bretland and selja vopn til þeirra sem vilja kaupa en ekki fyrir önnur ríki, geturðu útskýrt það? Donald Rumsfeld sá um að stjórna sölu af WOMD árið 1982 til Íraks til að berjast gegn Íran. Það eru til myndir af honum þar sem hann er að taka í hendurnar á Saddam Hussein. Hvað ætli hann hafi grætt mikið á því sjálfur? Tony Blair er í dag að útvega Indlandi og Pakistan efni og íhlutum í kjarnorkusprengjur. Bretar notuðu sinneps gas gegn Kúrdum árið...
Sælir Nuff. Ég treysti mér ekki að fjalla neitt um tunglið né heldur flugvéla/bílsprengju? árásina á Pentagon þar sem ég hef ekki skoðað tilheyrandi gögn nægilega vel og hef því ekki formað mér skoðun á því. Hinsvegar þá hef ég fyrir framan mig zapruder upptökuna sem er myndbandsupptaka sem var tekin á heimamyndavél af morði Kennedy´s. Eftir að hafa séð þessa upptöku þónokkuð oft þá hef ég komist að þeirri niðurstöðu að skotmennirnir hafi verið fleiri en einn og jafnvel þrír. Ennfremur þá...
Hérna eru allavega síður fyrir Deep Purple og Led Zeppelin: Led-Zeppelin.com : Opinber síða þeirra Led-zeppelin.org eða ledzeppelin.org :aðdáendasíða sem er mjög ítarleg og góð, hægt að hlaða niður myndböndum og audiofilum. Highwaystar.com eða .org eða .net : Man ekki hvert af endingunum það var en þetta er mjög ítarleg og góða síða. Endilega kíktu á hana. greatness.
Bara til að fræða þá sem þekkja þetta kannski ekki eins vel og ég. Nýlega þá kom frétt af BBC þar sem fyrirtækið sem sér eins og er um t.d. Who og er einnig með samning við Plant og held ég Page þá segja talsmenn fyrirtækisins að þetta sé einungis rumour. Það hafa þó verið teikn uppi á lofti undanfarið, sérstaklega í Bandaríkjunum að reunion tour sé að fara að hefjast. Þau teikn eru t.d. að Led Zeppelin leyfðu nýverið í fyrsta skipti á ferli sínum fyrirtæki að nota lag eftir þá í auglýsingu...
Ég er ekkert frekar fær um það að spá fyrir framtíðinni en þú en ég tel að Það er ekki hægt að útiloka þann möguleika að Japanir hefðu gefist upp gagnvart hinum eyðileggjandi möguleikum kjarnorkunnar ef herstöð eða herstöðum hefði verið eytt áður en Bandaríkjamenn myndu snúa sér að stærri skotmörkum. Bandaríkjamenn útilokuðu þann möguleika hinsvegar og það gerir þú líka. Ein af ástæðunum fyrir því að varpa kjarnorkusprengjunum á borgirnar tvær var til þess að enda stríði en það voru líka...
Bandaríkjamenn höfðu áður reifað um að nota kjarnorkusprengjur í stríðinu í Víetnam (eða Indókína eftir því frá hvaða sjónarhóli þú horfir á það). Árið 1954 þegar allt stefndi í óefni við Dien Pien Phu þá bauð þáverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna frönsku stjórninni að varpa kjarnorkusprengju á hersveitir Víetnama sem réðust að herstöðinni og einnig á flutningsleiðir hergagna frá Kína til Víetnams. greatness.
Ég er kannski frekar seint að svara þessu áliti þínu og biðst afsökunar á því. Það eru skiptar skoðanir um það hvort að það hafi þurft að sprengja kjarnorkusprengju á Japanskri grund til þess að lama baráttuþrek þjóðarinnar. Ég hef bent áður í svona umræðu á þá uppástungu sem Bandaríkjamenn hafa líklegast ekki velt fyrir sér að sprengja fyrst kannski herstöð í stað heillar borgar. Staðreyndin er hinsvegar sú að Bandaríkjamenn ákváðu strax að sprengja upp borg sem hafði í gang stríðsins...
ÉG þakka þér kærlega fyrir afsökununina. Ég var mjög reiður í morgun þegar ég las þetta og af öðrum ástæðum þegar í nokkuð annarlegu ástandi. Hinsvegar þá er ég svo glaður núna og í góðu skapi að ég nenni hreinlega ekki að vera að lesa þetta allt og öll hin svörin til að muna það. Það er of mikið að gera. Ég vona að þú verðir sátt þó að ég svari þessu kannski seinna ef þá einhvern tímann:) Ég er hinsvegar sammála þér að fyrirgefningin er göfug og falleg hugmynd en því miður ekki raunsæ....
Ja stór eru orðin og ég kallaður þjóðernissinni með að ýja að þjóðernishreyfingunni á íslandi sem var afrakstur vaxandi “kalds stríðs” í Evrópu sem var að hluta til grundvöllurinn að fyrri heimsstyrjöldinni. Mér er spurn hvað veistu virkilega um nýlendustefnuna, þá glæpi sem Evrópubúar frömdu þá gegn Afríkubúum? Ég tel að eftir að hafa lesið pósta þína að þú vitir nákvæmlega ekkert um þetta og er það líklegast það sem veldur mismunandi skoðunum okkar á málinu. Ég geri mér samt grein fyrir...
Eitt annað kæra Thulesol. Þú segir að Sharon væri örugglega komin bak við lás og slá ef það væru einhver raunveruleg sönnunargögn gegn honum. Þar sem Ísraelsmenn stjórnuðu svæðinu í rauninni geri ég mér ekki að skóna að það séu til gögn þar sem Sharon undirritar fyrirskipun um að opna búðirnar fyrir morðóðum kristnum líbönum. Þú myndir kannski leita að þeim ef þú værir saksóknari hjá stríðsréttardómstólnum. Hinsvegar er það staðreynd að í dag er Sharon eini núverandi þjóðarleiðtoginn sem er...
Jáhá. Ég veit ekki hvort að ég hafi áhuga á því að svara manneskju sem kallar mig nasista!!! En ég mun reyna eftir fremsta megni og hemja mig í leiðinni. Varðandi það að óbeint kalla þig karlmann biðst ég afsökunar á því, ég einfaldlega vissi það ekki. Þú heldur líklegast að maðurinn hafi bara verið venjulegur borgari sem gekk út í búð á sunnudagsmorgna einsamall til að kaupa morgunblaðið. Í þeim heimi sem þessi maður var þá ferðaðist hann ávallt með vopnuðum mönnum, hann bjó á stað sem var...
Sælir idf. Af hverju að halda því ekki fram að samningaleiðin hefði ekki gengið? Þó á annari forsendu. Ég er þeirrar skoðunar að ef Bandaríkin hefðu notað sprengjuna upprunalega á herstöð þá hefðu afleiðingarnar verið þær sömu. Japanir hefðu séð hvernig afleiðingarnar hefðu getað orðið ef hún væri notuð á borg og þar sem þeir voru þegar orðnir svona hallloka í stríðinu hlyti það að hafa úrslitaþýðingu. Hinsvegar var sprengjan fyrst notuð á borgir. Þar sem margmenni er og á stríðstímum að...
sælir aftur thulesol:) Í raun er samanburðurinn á flutningi hvíta mannsins til Ameríku(bandaríkjanna) og gyðinga til Palestínu ekki svo galinn. Stór hluti af þeim sem fyrst fluttu til Bandaríkjanna voru að flytja þangað vegna þess að þeir urðu fyrir stjórnmála og/eða trúarofsóknum í Evrópu. Þetta á þó ekki um alla og líklegast ekki meirihluta því það voru margar aðrar aðstæður að baki þessum mikla mannflutningi. greatness.
Ég biðst afsökunar á því að vera að skrifa svona mörg og lítil svör við málefnum sem ég tek eftir í svörum þínum. Þú verður kannski leiður á því að svara mér. Varðandi það sem er að gerast í Afríku þar sem hvítir bændur er drepnir til að “stela” löndunum þeirra. Ég er ekki fylgjandi því að drepa eigi hvítu bændurna en ég er fylgjandi því að svartir menn í þessum löndum, þar sem þeir eru í meirihluta og eru ennfremur upprunalega frá Afríku eigi að endurheimta þessi lönd. Ástæðan fyrir því að...
Ágætt svar varðandi Líberíu en er ástæðan fyrir því að það ríki var stofnað ekki vegna þess að í seinni nýlendukapphlaupinu settu Evrópuríkin niður landamæri sem áttu engan grunn fyrir í þjóðernisskiptingu sem var fyrir í álfunni. Er það ekki bara rétt og góð þróun að ríki í Afríku séu stofnuð til þess að leiðrétta þessa misskiptingu sem að miklu leyti má kenna um margar ættbálkaerjur og vandræði sem hafa steðjað að álfunni? greatness.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..