Wes Brown meiddur, Mills í startholunum. Gary Neville var ekki valinn í landsliðið vegna meiðsla og nú hefur Wes Brown fengið 1 sólarhring til að sýna fram á að hann sé í lagi en hann gat ekki æft með liðinu i dag. Ólíklegt er talið að hann verði í formi svo Danny Mills, Leedsari er í startholunum. Hann hefur einu sinni verið valinn í hópinn, þegar Glenn Hoddle var með liðið en fékk ekki að spila. Þá var hann í vörninni hjá Charlton. Mills hefur staðið sig frábærlega í vetur, átti svolítið erfitt í byrjun en komið ótrúlega til í vetur og mörg ensk lið verið að sýna honum áhuga.