Seaman ekki alveg hress. Talið var að David Seaman hefði náð sér af axlarmeiðslunum sem hafa verið að hrjá hann en á æfingu fyrir landsleikinn á morgun, þegar Nigel Martyn og David James voru að negla á hann, meiddi hann sig aftur. Ray Clemence, markmannsþjálfari, sendi hann rakleitt í meðferð hjá Gary Lewin, sjúkraþjálfara, sem reyndar er líka sjúkraþjálfari hjá Arsenal. Það er ekki búið að afskrifa hann fyrir leikinn, en líkur eru á að hann nái ekki að vera með. Samkvæmt því er sést hefur á æfingum mun Steve MacManaman leysa Heskey af hólmi á kantinum. Líklegt lið: Martyn, Phil Neville, Keown, Ferdinand, A. Cole, Beckham, Gerrard, Scholes, MacManaman, Fowler og Owen.

Haft eftir Andy Dunn, íþróttafréttamanni Sunday People.