2 til Englands - 1 í burtu Þeir hjá Derby halda því fram að sennilega geri þeir samning við Ravanelli í kvöld en hann er nú á Englandi að ræða málin. Lazio hafði fyrir sitt leyti samþykkt 2 millur og svo fær hann 35 þús pund á viku.

Nelson Vivas er farinn til Inter Milan. Fór frítt og er ægilega glaður með það.

forsvarsmenn Sunderland segjast alveg vera að ná samningum við Bordeaux um kaup á Lilian Laslanders, 29 ára frönskum landsliðsmanni. Allavega fyrrverandi landsliðsmanni þar sem hann var ekki valinn í hópinn í álfukeppnina sem lauk um daginn. Kaupverð ca 3 millur. Peter Reid segir hann góðan kost í framlínuna þar sem Nial Quinn hefur verið mikið frá vegna meiðsla. Þess má geta að Paris St Germain og Celtic voru að pæla í honum líka.