"punda"bikarinn Nú á að fara að veita verðlaunafé með FA bikarnum fína. Þetta er algjör nýlunda, enda heiðurinn í veði og ekkert peningakjaftæði hingað til. Margir urðu fúlir þegar Man Utd vildi ekki vera með fyrir tveim árum og þá var farið að ræða um “gulrót”. Verðlaunafé verður 2 millur en einnig munu þau lið sem vinna leiki sína, og þannig smám saman komast nær bikarúrslitum, fá bónusgreiðslur. Það munar um það fyrir litlu liðin og ef þetta hefði verið svona í fyrra hefði Wycombe Wanderers fengið 725 þús pund og slatta fyrir sjónvarpsútsendingar (sem önnur lið fá líka).