Arsenal gæjar Kanu segir að ef hann þurfi að verma bekkinn áfram, eins og oftast sl vetur, vilji hann fara aftur til Inter Milan. Þeir hafa víst alveg áhuga á að fá hann til sín. Kanu vill meina að hann eigi skilið sæti í byrjunarliðinu og nennir ekki svona ströggli. Hann ætlar samt aðeins að bíða og sjá hvað verður.

Alex Manninger hefur staðfest að hann sé að fara til Fiorentina á lánssamning, og verður þar næstu leiktíð.

Svo má geta þess að ofbeldið er að verða leiðinlegt þegar lið ferðast milli landa til að keppa. Það var nú ekki fagurt þegar Leedsarar voru að keppa við Galatasary og tveir aðdáendur stungnir til bana. Það er alltaf einhver grefillinn að gerast og nú var Celtic fan skotinn, bara sísona, á bar í Amsterdam, en Ajax og Celtic (1-3)voru að keppa í kvöld, í undankeppni Meistaradeildar.
Það voru víst um það bil ÁTTAÞÚSUND Celtic aðdáendur sem trilluðu sér yfir til Hollands og gekk bara vel ef þetta er undanskilið. Maðurinn dó nú ekki, sem betur fer.