Ég horfi á þig úr fjarlægð vinar, nærri en þó svo órafjarri. Læt ekki á neinu bera þótt kremjir þú harta mitt, aftur og aftur, óafvitandi. Sætti mig við brauðmolana sem þú hendir til mín. Bros frá þér til mín, fær hjarta mitt til að brosa. Þinn hlátur af mínum völdum, kveikir í sál minni og heldur henni gangandi allan daginn. Ein lítil snerting, sendir rafstraum í gegnum mig allan og lyftir andanum á flug. Einn saklaus koss, flögrar um huga minn eins og fiðrildi og festir sig í minninu um...