Tvö skærbjört augu
fylgja mér
inní eilífðina.

Einn snarpur koss
er kveðjan mín
úr þessum heimi.

Með bros á vör
keyri ég bjartsýnn
út úr þessu ævintýri.