Ég opnaði hjarta mitt uppá gátt
á Internetsins síðum.
Ég líðan mína í ljóðform setti
ásamt löngunum undurblíðum.

Einhver það sá og til mín sendi
sérlega fallega strauma.
Það fylgdi þeim fjarska góður andi
líkt og fyllir góða drauma.

Við samskipti hófum og sá ég fljótt
að sál þessi var blíð og góð.
Þegar við hittumst þá kættist ég dátt
og samdi þennan kærleiksóð.

Því nú hef ég fundið nýjan vin
með næma sál og bjarta.
Og ávallt meðan ég andan dreg
áttu pláss í mínu hjarta.