Í hvert sinn sem ég sé þig
þá líður mér
eins og þegar ég sé lögreglubíl
í baksýnisspeglinum.

Jafnvel þótt engin hætta sé á ferð
þá tekur hjartað kipp
því það er alltaf möguleiki
á að eitthvað gerist.